Giannis og félagar réðu ekkert við CJ McCollum | Úrslitin í NBA í nótt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. nóvember 2018 07:30 CJ McCollum fagnar í nótt. Vísir/Getty
Portland Trail Blazers varð í nótt aðeins annað liðið sem nær að vinna Milwaukee Bucks í NBA-deildinni í körfubolta í vetur. Nýliðinn Luka Doncic fór á sama tíma fyrir langþráðum sigri Dallas Mavericks.CJ McCollum var í miklu stuði og skoraði 40 stig þegar Portland Trail Blazers vann 118-103 heimasigur á Milwaukee Bucks. Bucks liðið hafði unnið 8 af fyrstu 9 leikjum sínum á tímabilinu. 19 af 40 stigum CJ McCollum komu í þriðja leikhlutanum þegar hann hjálpaði Portland að ná fjórtán stiga forystu fyrir lokaleikhlutann. Hann endaði með því að hitta úr 17 af 26 skotum sínum í leiknum. Evan Turner kom með 16 stig og 11 fráköst af bekknum fyrir Portland liðið sem hefur unnið 8 af 11 leikjum sínum á tímabilinu. Giannis Antetokounmpo var atkvæðamestur hjá Milwaukee Bucks með 23 stig og 9 fráköst en Brook Lopez var með 22 stig og sex þrista.Nýliðinn Luka Doncic skoraði 23 stig þegar Dallas Mavericks endaði sex leikja taphrinu með 119-100 heimasigri á Washington Wizards. Wesley Matthews skoraði 22 stig fyrir Dallas liðið og Harrison Barnes bætti við 9 stigum og 13 fráköstum.John Wall var atkvæðamestur hjá Washington með 24 stig en þeir Otto Porter Jr. og Bradley Beal skoruðu báðir 19 stig.Kemba Walker heldur áfram að spila vel en hann var með 29 stig og 7 stoðsendingar þegar Charlotte Hornets vann 113-102 sigur á Atlanta Hawks. Marvin Williams skoraði 20 stig. Walker hefur skorað 5 stig eða meira í sjö af ellefu leikjum tímabilsins. Jeremy Lin var atkvæðamestur hjá Hawks með 19 stig.Caris LeVert var með 26 stig fyrir Brooklyn Nets sem átti ekki í miklum vandræðum með að vinna Phoenix Suns á útivelli. Devin Booker var stigahæstur hjá Phoenix með 20 stig en hitti aðeins úr 6 af 21 skoti. Nýliðinn Deandre Ayton var með 15 stig og 13 fráköst en Suns tapaði þarna í áttunda skiptið í síðustu níu leikjum.Úrslitin í NBA-deildinni í nótt: Portland Trail Blazers - Milwaukee Bucks 118-103 Phoenix Suns - Brooklyn Nets 82-104 Dallas Mavericks - Washington Wizards 119-100 Charlotte Hornets - Atlanta Hawks 113-102
NBA Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira