Lífið

Aðdáendur Avengers-leikara klóruðu sér í kollinum yfir dularfullu myndbandi

Birgir Olgeirsson skrifar
Var leikarinn að auglýsa nýjan herrailm eða fara að kynna nýja sjónvarpsseríu?
Var leikarinn að auglýsa nýjan herrailm eða fara að kynna nýja sjónvarpsseríu? Twitter
Aðdáendur breska leikarans Tom Hiddleston klóruðu sér margir í höfðinu þegar þeir sáu stutt myndbrot sem hann deildi á Twitter í gær.

Þar má sjá mann ganga í átt að myndavél í neonlýstum undirgöngum. Hann nemur staðar og horfir út undan sér áður en hann lítur niður og er auðsýnilega dapur. Í lokin má sjá orðið Betrayal yfir skjánum og veltu margir fyrir sér hvað þetta átti að þýða. Var leikarinn að auglýsa nýjan herrailm eða fara að kynna nýja sjónvarpsseríu?

Hið rétta er að Hiddleston mun leika eitt af aðalhlutverkunum í leikverkinu Svik eftir Nóbelskáldið Harold Pinter, sem heitir Betrayal á frummálinu.

Um er að ræða eitt af opinskárri verkum Pinters sem segir frá hjónunum Róbert og Emmu og samskipti þeirra við besta vin Róberts, Jerry. Verkið segir frá ástarþríhyrningi þeirra en sagan er sögð aftur á bak í tíma og hefst á endalokum sambandsins og vinnur sig aftur að fyrsta stolna kossinum.

Þetta verk var sett upp í Borgarleikhúsinu árið 2005 þar sem Ingvar E. Sigurðsson, Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Hilmir Snær Guðnason léku aðalhlutverkin.

Uppsetningin sem Hiddleston mun leika í verður hins vegar frumsýnd í mars næstkomandi í West End í Lundúnum.

Þeir sem ekki þekkja til verka Hiddleston má nefna að hann er hvað þekktastur fyrir að leika hrekkjalóminn Loka í Marvel-myndunum um Avengers-hetjurnar. Áður en hann haslaði sér völl í þeim myndum hafði hann getið sér gott orð fyrir frammistöðu sína í West End.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.