Innlent

Fjögurra bíla árekstur í Ártúnsbrekku

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá vettvangi um klukkan fimm síðdegis í dag.
Frá vettvangi um klukkan fimm síðdegis í dag. Vísir/JóiK
Fjögurra bíla árekstur varð í Ártúnsbrekku í Reykjavík á fimmta tímanum í dag.

Bílarnir voru allir á leið í vesturátt og var um aftanákeyrslu að ræða miðað við myndir sem fréttamaður Stöðvar 2 náði á vettvangi.

Minniháttar meiðsli urðu á fólki og nokkrar tafir eru á umferð inn í borgina.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×