Lífið

Sagði jóladraslinu stríð á hendur og hvetur til umhverfisvænni jólagjafa

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Sigga Dögg er einn þekktasti kynfræðingur landsins.
Sigga Dögg er einn þekktasti kynfræðingur landsins.
Gjafabréf á kaffihús, snyrtivörur í umhverfisvænum umbúðum, túrbrækur og listaverk eru meðal þeirra hugmynda sem Sigríður Dögg Arnardóttir kynfræðingur, betur þekkt sem Sigga Dögg, fékk þegar hún kallaði eftir hugmyndum frá Facebook vinum sínum. Hún segir að það sé auðvelt að hrífast með í jólaösinni en vonar að fólk geti nýtt sér hugmyndirnar sem bárust.

„Sóun fer í taugarnar á mér,“ segir Sigga Dögg í samtali við Vísi.

„Hún fer í taugarnar á mér fjárhagslega og hvað hún er umhverfisfrek og hvað þetta er ekki bara buddan heldur tíminn sem fer í að afla peninganna í einhvern hlut sem er gleymdur eftir smástund. Ég er orðin ógeðslega þreytt á því öllu.“

Hún segist taka eftir því að umræða um umhverfisvænar jólagjafir og minni neyslu í kringum jólin sé orðin háværari. Til dæmis tali fleiri um að gefa upplifanir, frekar en veraldlega hluti.

„Þegar það er alltaf verið að keppast um tíma og tíminn er orðinn ein dýrmætasta auðlindin. Ekki bara að gefa upplifun heldur að gefa samveru. Það er eitt að senda mann á súkkulaðinámskeið, sem er kannski skemmtilegt, en aðalgullið er kannski að fá einhvern með sér.“

Ef fleiri taki þátt séu færri hallærislegir

Sigga segist lengi hafa stundað það að gefa hvers kyns gjafabréf og upplifanir í tækifærisgjafir. Til dæmis á árum sínum sem fátækur námsmaður. Hún viðurkennir að stundum hafi hún fengið á tilfinninguna að gjafabréf upp á samveru með henni gæti þótt hallærisleg gjöf en henni hafi þó alltaf þótt það góð hugmynd.

„Ég er ótrúlega þakklát fyrir þessa vitundarvakningu því þá er ég ekki alveg jafn hallærisleg.“

Krydd og uppskrift, þurrefni í krukku með uppskrift að til dæmis kakó eða smákökum og inneignarmiði í heimaeldaða máltíð eru einmitt meðal þeirra hugmynda sem Sigga Dögg tekur saman í færslu á Facebook.

Hún segir einnig að þetta hugarfar hafi smitast yfir á aðra heimilismenn.

„Ég á þrjú börn og þú getur rétt ímyndað þér hversu mörg leikföng eru á heimilinu. Fyrir tveimur árum síðan fórum við að biðja um í afmælisgjöf fyrir krakkana upplifanir. Það hafa verið gjafabréf í bíó, í keilu, ísbúð og alls konar,“ segir hún.

„Þau eru rosalega peppuð fyrir því að fara að nota gjafabréfið sitt, það verður meiri stemning í kringum þetta og kannski aðeins meira úr því.“

Færslu Siggu Daggar má sjá hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.