
Þar sem við leggjum áherslu á að klæða drengina okkar í alla liti höfum við oftar en ekki verslað á þá í „stelpudeildum“ til þess að finna litríkan fatnað. Út frá þessu kviknaði hugmyndin að Regnboganum, barnaverslun með litríkan „unisex" fatnað. Á bak við verslunina er sterk hugsjón sem við vonumst til að fái fólk til að endurhugsa hlutina,“ útskýrir Hildigunnur.
Hún segir svo afgerandi skiptingu takmarka valkosti barna og stýra þeim í fastmótuð hólf.

Með þessu er verið að ákveða fyrirfram hvaða áhuga er ætlast til að börnin hafi eftir kyni. Þetta finnst okkur mjög sorglegt því að það síðasta sem við viljum gera er að takmarka möguleika barnanna okkar,“ segir Hildigunnur og Sandra tekur undir.
„Okkar draumur er sá að börn geti valið það hverju þau klæðast og hvað þau leika sér með. Að möguleikar barna séu endalausir en ekki fyrirfram ákveðnir út frá því hvaða kyni þau fengu úthlutað við fæðingu. Við hvetjum fólk til þess að viðhalda ekki þessum staðalímyndum.“

Flest þeirra merkja sem fást í Regnboganum eru sænsk en þær Hildigunnur og Sandra segjast hafa leitað í smiðju svía þar sem þeir standi framarlega í jafnréttismálum.
„Það er akkúrat það sem þetta snýst allt um í grunninn, jafnrétti. Í Svíþjóð hefur orðið mikil vitundarvakning í þessum málum og mörg sænsk merki framleiða litríkan „unisex" fatnað.
Við leggjum einnig mikla áherslu á að flytja inn fatnað sem er framleiddur með sjálfbærni að sjónarmiði, þar sem er hugað að náttúrunni og sanngjörnum vinnuskilyrðum. Allur okkar fatnaður er GOTS vottaður og úr lífrænni bómull,“ útskýrir Sandra.
Leikföng sem örva sköpunarkraft


Þær Hildigunnur og Sandra taka þátt í jólamarkaði netverslana sem hefst á morgun, í Víkingsheimilinu í Fossvogi. Markaðurinn er opinn laugardag og sunnudag milli klukkan 11 og 18.
Nánar á Regnboginnverslun.is. Þá er Regnboginn verslun einnig á facebook og Instagram.
