Lífið

Landsliðsmenn trúlofuðu sig yfir jólin

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ragnar Sigurðsson og unnusta hans Alena.
Ragnar Sigurðsson og unnusta hans Alena. Ragnar Sigurðsson/Instagram
Ástin hefur verið við völdin hjá landsliðsmönnunum í knattspyrnu Ragnari Sigurðssyni og Arnóri Ingva Traustasyni sem tilkynntu báðir um að þeir hefðu trúlofast kærustum sínum í kringum jól.

Varnarmaðurinn Ragnar Sigurðsson sem spilar fyrir rússneska liðið Rostov birti mynd af sér og Alenu, rússneskri kærustu sinni, á Instagram með orðunum „Já sagði hún“. Samband þeirra var opinberað um miðjan síðasta mánuð þegar Ragnar birti af þeim mynd saman í flugvél á Instagram.

 
 
 
View this post on Instagram
Yes she said

A post shared by Ragnar Sigurðsson (@sykurson) on Dec 25, 2018 at 6:10am PST

Félagi Ragnars úr landsliðinu, miðjumaðurinn Arnór Ingvi, trúlofaði sig einnig rétt fyrir jól. Unnusta hans, Andrea Röfn Jónasdóttir, birti færslu í dag með dagsetningunni 22. desember og mynd af þeim saman.

„Ég mun segja já við þig á hverjum degi og hverja mínútu svo lengi sem ég lifi,“ skrifar Andrea Röfn.

Parið tilkynnti að það ætti von á barni í ágúst. Parið býr saman í Malmö í Svíþjóð þar sem Arnór Ingvi leikur fyrir Malmö FF. Andrea Röfn er menntaður viðskiptafræðingur og starfar sem fyrirsæta og bloggari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.