Körfubolti

Sjáðu öll verðlaunin fyrir fyrri hlutann í Dominos-deild kvenna

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ásta Júlía tekur við sínum verðlaunum í gærkvöldi.
Ásta Júlía tekur við sínum verðlaunum í gærkvöldi. vísir/skjáskot
Jólaþáttur Domino's Körfuboltakvölds fór fram á Hard Rock í gærkvöldi en mikil gleði var í settinu og í salnum.

Veittar voru viðurkenningar fyrir fyrri hluta Dominos-deildanna og hér að neðan má sjá þær viðurkenningar sem voru veittar fyrir Dominos-deild kvenna sem og myndbönd frá afhendingunum.

Nokkrir verðlaunahafar voru í salnum en einhverjar áttu ekki heimagengt. Einnig var valið Geysis úrvalslið fyrri hlutans sem og dómari fyrri hlutans í karla- og kvennaflokki.

Verðlaun fyrir fyrri hlutann:

Besti leikmaðurinn: Brittanny Dinkins - Keflavík

Besti ungi leikmaðurinn: Ásta Júlía Grímsdóttir - Val

Besti varnarmaður fyrri hlutans: Angelika Kowalska - Snæfell

Besti þjálfari fyrri hlutans: Benedikt Guðmundsson - KR

Geysis-úrvalsliðið fyrri hlutans: Bryndís Guðmundsdóttir - Keflavík, Bríet Sif Hinriksdóttir - Stjarnan, Brittany Dinkins - Keflavík, Angelika Kowalska - Snæfell, Orla O'Reilly - KR.

Dómari fyrri hlutans: Leifur S. Garðarsson

Besti leikmaður fyrri hlutans:
Klippa: Körfuboltakvöld: Bestu leikmenn Dominos-deildanna
Besti ungi leikmaðurinn fyrri hlutans:
Klippa: Körfuboltakvöld: Besti ungi leikmaðurinn í DD kvenna
Besti varnarmaður fyrri hlutans:
Klippa: Körfuboltakvöld: Besti varnarmaðurinn í DD kvenna
Besti þjálfari fyrri hlutans:
Klippa: Körfuboltakvöld: Besti þjálfarinn í DD kvenna
Geysis úrvalslið fyrri hlutans:
Klippa: Körfuboltakvöld: Geysis úrvalslið fyrri hlutans í DD kvenna
Besti dómari fyrri hlutans:
Klippa: Körfuboltakvöld: Besti dómari fyrri hlutans



Fleiri fréttir

Sjá meira


×