Innlent

Lögreglan fylgist sérstaklega með umferð við Fossvogs- og Gufuneskirkjugarða

Birgir Olgeirsson skrifar
Bílaumferð verður takmörkuð við Fossvogskirkjugarð á aðfangadag.
Bílaumferð verður takmörkuð við Fossvogskirkjugarð á aðfangadag. fbl/stefán
Búast má við mikilli umferð við kirkjugarða á höfuðborgarsvæðinu á Þorláksmessu og aðfangadag. Ætlar lögreglan að fylgjast sérstaklega með umferð við Fossvogskirkjugarð og Gufuneskirkjugarð og greiða fyrir umferð eins og hægt er.

Vekur lögreglan sérstaka athygli á því að Fossvogskirkjugarður er lokaður allri bílaumferð á aðfangadag frá klukkan 11 – 14 vegna mikils fjölda gangandi vegfarenda og slysahættu. Er ökumönnum bent á bílastæði við Fossvogskirkju, Klettaskóla, Suðurhlíð og Vesturhlíð.

Lögreglan segir aðkomu að Gufuneskirkjugarði verða eingöngu frá Hallsvegi. Starfsfólk Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma stýrir umferðinni inni í kirkjugarðinum og verður um einskonar hringakstur að ræða. Farið er út úr Gufuneskirkjugarði norðan megin og inn á Borgarveg. Ökumenn eru beðnir um að aka Borgarveg í vestur og þaðan um Strandveg. Með þessu móti minnkar álagið á Víkurveg og Hallsveg og greiðir fyrir umferð þeirra sem eru að koma í kirkjugarðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×