Íslandsmet féllu í Ásvallalaug Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 11. nóvember 2018 10:00 Anton Sveinn Mckee. vísir/anton
Anton Sveinn McKee bætti níu ára gamalt Íslandsmet og nældi sér í HM lágmark í 200m bringusundi á Íslandsmeistaramótinu í 25m laug. Anton synti á 2:07,04 og varð Íslandsmeistari í greininni. Hann bætti þar Íslandsmet Jakobs Jóhanns Sveinssonar um tæpa sekúndu, gamla metið var 2:07,75. Fyrr í gær náðust tvö önnur HM lágörk, Ingibjörg Kristín Jónsdóttir fór 50m baksund á 27,95 sekúndum og var einum hundraðasta úr sekúndu undir HM lágmarkinu í greininni. Hún var fyrsta íslenska konan til þess að ná lágmarki á mótið sem fer fram í Kína í desember. Kristinn Þórarinsson, sem synti undir HM lágmarki í 200m fjórsundi á föstudag, náði einnig í lágmark í 50m baksundi þegar hann varð Íslandsmeistari á 24,27 sekúndum. Lágmarkið er 24,82. Íslandsmeistaramótið er haldið sameiginlega af sundsambandinu og íþróttasambandi fatlaðra og náði Róbert Ísak Jónsson að vinna bronsverðlaun í 100m flugsundi með því að synda á 59,12 sekúndum sem er Íslandsmet í flokki þroskahamlaðra S14. Hann gerði enn betur í 400m fjórsundi. Þar náði hann í silfurverðlaun á nýju heimsmeti, 4:42,63 mínútum. Tíminn er einnig nýtt Íslandsmet, en þegar fréttatilkynning ÍF var send út í gærkvöld var ekki búið að staðfesta heimsmetið.
Sund Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Logi frá FH til Króatíu Fótbolti Dagskráin í dag: Það er pílan Sport Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Fleiri fréttir Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Dagskráin í dag: Það er pílan Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Cullen stormaði út af blaðamannafundi White og Littler mætast í 16-manna úrslitum Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Martin og félagar burstuðu botnslaginn Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Fimm töp í röð hjá Elvari og félögum Viktor Gísli góður þegar Wisla Plock fór á toppinn Negla Elínar Klöru eitt af flottustu mörkum EM Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Sektaður fyrir að vera í sitthvorum skónum Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Tapsár Tyson Fury: „Hann fékk jólagjöfina sína of snemma“ Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sjá meira