Fyrstu tölur í Reykjavík: Meirihlutinn fallinn Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 26. maí 2018 23:47
Meirihlutinn í Reykjavík er fallinn samkvæmt fyrstu tölum í Reykjavík. Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir að þetta séu vonbrigði miðað við það sem flokkurinn hafði stefnt að. Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn í Reykjavík eins og staðan er núna með átta borgarfulltrúa. Samfylkingin er næststærst með sjö fulltrúa en Vinstri græn eru með tvo fulltrúa og Píratar einn. Það þýðir að flokkarnir þrír ná ekki að mynda meirihluta en tólf fulltrúa þarf til þess. Viðreisn eru með tvo menn inni eins og staðan er núna, Flokkur fólksins einn sem og Sósíalistaflokkurinn og Miðflokkurinn.Fyrstu tölur í Reykjavík.„Auðvitað ekki vel. Þetta eru vonbrigði miðað við það sem við höfum stefnt að að sjálfsögðu,“ sagði Skúli í beinni útsendingu í kosningasjónvarpi Stöðvar 2 í kvöld spurður hvernig honum litist á fyrstu tölur. Hann benti þó að aðeins væri búið að telja 10 prósent atkvæða í Reykjavík. „Ég hef búist við því allan tímann að þetta yrði einhver skrýtnasta kosninganótt sem við munum eftir. Við höfum aldrei áður verið með svona marga lista og það þarf mjög lítið til þess að allt fari á flot.“Fréttin hefur verið uppfærð.
Mest lesið Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Innlent Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Innlent Bugaðar á bak við eldavélina að baka fyrir TikTok Innlent Um þúsund bréfberar misst fingur eða framan af fingri á fimm árum Erlent Illvænlegar vendingar á veðurspánni fyrir helgina Veður Úkraínumenn aðstoða uppreisnarmenn í Malí gegn Wagner-liðum Erlent „Fólkið verður hreinlega að rísa upp“ Innlent Mælir gegn notkun á teflonvörum Innlent Þolinmæði Færeyinga gagnvart Norðurlandaráði á þrotum Erlent Helgi segir lítinn sóma að framgöngu ríkissaksóknara Innlent Fleiri fréttir Háttsemi Helga nái aftur til 2017 Sagði móður ekki heila á geði og fær skömm í hattinn Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Ekki sammála því að atvinnulífið hafi brugðist Helgi segir lítinn sóma að framgöngu ríkissaksóknara Gæti gosið á næstu dögum Samtök atvinnulífsins blása á gagnrýni formanns VR Segir Helga ekki hafa bætt ráð sitt Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Bilið aldrei meira milli karla og kvenna Lúxussnekkja Ratcliffe í Reykjavíkurhöfn Bugaðar á bak við eldavélina að baka fyrir TikTok Almennir borgara eltu uppi þjófa í tveimur aðskildum málum Hlaupið marki líklega upphaf á aukinni virkni í Kötlu Skorar á Guðrúnu að fallast ekki á lausn Helga frá störfum „Fólkið verður hreinlega að rísa upp“ Glæsileg 64 ára gömul rúta vekur mikla athygli Þyrlusveitin sinnti óvanalegu útkalli á Helgafelli Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Mælir gegn notkun á teflonvörum Taumlaus græðgi, hlaup og umdeild bílakaup „Ekkert forsetabíla-hókuspókusprútt hér alla daga“ Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Einn slasaður í mótorhjólaslysi við Látrabjarg Íslenskir þjóðbúningar vekja lukku á Ólafsvöku Mohamad vill flytja af landi brott Enn mikið vatn í ám þótt dregið hafi úr rigningu Eigandi Brimborgar gefur upp viðskiptakjörin Einn besti dagur sumarsins í Reykjavík um helgina Rannsaka þátt rútubílstjóra sem fylgdist með hraðanum í síma Sjá meira