
Ekki hans hlutverk að flokka rusl fyrir túrista
Halldór segir sökudólgana í flestum tilvikum vera ferðamenn af hótelum og heimagistingaríbúðum í nágrenninnu. Ef flokkað er vitlaust í tunnur eru þær ekki losaðar, samanber skilaboðin sem Halldór fékk. Í þeim tilvikum er hægt að óska eftir aukalosun sem kostar 3750 krónur auk 1115 króna á hverja tunnu – eða fara með sorpið á endurvinnslustöð Sorpu, að því er fram kemur í skriflegu svari Reykjavíkurborgar vegna málsins.Halldór segir nágranna sína einnig hafa orðið varir við vandann. Þá sé hann ekki ánægður með úrræði borgarinnar.
„Ég þarf annað hvort að borga þetta gjald fyrir sérstaka losun eða fara ofan í ruslatunnuna og flokka rusl fyrir einhverja túrista. Það er ekki mitt hlutverk. Við erum með tunnur á leigu og við flokkum. Það er algjörlega út úr kortinu að vera að „sekta“ íbúa með sköttum, gjöldum og vinnu fyrir eitthvað sem túristar gera.“
Halldór kallar því eftir úrbótum í þessum efnum, til að mynda með lækkun gjalda vegna sorphirðunnar og fjölgun almenningsruslatunna í borginni.
Margar kvartanir vegna heimagistingar
Í skriflegu svari Reykjavíkurborgar vegna umkvartana Halldórs segir að sorphirðu borgarinnar og heilbrigðiseftirlitsins berist töluverður fjöldi ábendinga og kvartana. Vissulega megi draga þær ályktanir að margar þeirra séu vegna gistiíbúða, þó að sorphirðan hafi ekki skrá yfir slíkar íbúðir.Árið 2016 var fjallað um sorphirðu í Reykjavík sem afleiðingu aukinnar heimagistingar í borginni. Hið sama virðist uppi á teningnum nú.
Um möguleg viðbrögð við vandamálinu segir í svari borgarinnar að sorpílát séu á ábyrgð eigenda íbúða og sú ábyrgð fellur ekki úr gildi þó íbúðin sé leigð út. Þá þjónustar sorphirða borgarinnar ekki fyrirtæki og stofnanir, hótel þar með talin. Einnig er bent á að sorphirðan veiti ráðgjöf og sé tilbúin til að aðstoða við að leita lausna.