Karlalistinn opinberar lista sinn Samúel Karl Ólason skrifar 7. maí 2018 14:51 Vísir/Friðrik
Karlalistinn hefur kynnt framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem haldnar verða þann 26. maí. Gunnar Kristinn Þórðarson er í fyrsta sæti listans og hann og meðframbjóðendur hans kynntu helstu stefnumál flokksins á blaðamannafundi nú í dag. Gunnar Waage er í öðru sæti, Stefán Páll Páluson er í því þriðja, Kristinn Skagfjörð Sæmundsson er í því fjórða, Hjalti Þorvaldsson er í því fimmta, Dabjört Edda Bárðardóttir er í því sjötta, Sigfús Atli Unnarsson er í því sjöunda, Loftur Baldvinsson er í því áttunda, Þorfinnur Pétur Eggertsson er í því níunda og María Ás Birgisdóttir er í því tíunda.Hér má sjá lista yfir helstu stefnumál Karlalistans: 1. Bætta og aukna barnavernd. Barnaverndarnefndir eru í dag pólitískt skipaðar. Barnaverndarnefnd er stjórnvald sem tekur ákvörðun og úrskurðar í barnaverndarmálum. Þær ákvarðanir hafa afgerandi áhrif á örlög barna sem þarfnast opinberrar verndar. Mikilvægt er að Reykjavíkurborg falli frá núgildandi fyrirkomulagi og auglýsi stöður barnaverndarnefndar og ráði þá færustu úr hópi umsækjenda, til að tryggja faglega málsmeðferð barnaverndarmála og réttar ákvarðanir. 2. Að barnavernd Reykjavíkurborgar beiti heimildum sínum til íhlutunar þegar umgengni er tálmað með óréttmætum hætti. 3. Að Innheimtustofnun sveitarfélaga taki aukið tillit til félagslegra og heilsufarslegra þátta við innheimtur meðlaga. Annar hvert umgengnisforeldri er á vanskilaskrá samkvæmt úttektum Creditinfo og eru þar af 30% þeirra á vanskilaskrá að kröfu Innheimtustofnunar. Innheimtustofnun hefur aukið innheimtuhörku á undanförnum árum, án tillits til félagslegra aðstæðna umgengnisforeldra. Á meðan umgengnisforeldrar fá ekki aðkomu að velferðarkerfinu sem foreldrar, er óforsvaranlegt að Innheimtustofnun gangi hart á ráðstöfunartekjur umgengnisforeldra. Innheimtustofnun starfar á ábyrgð sveitarfélaganna og getur Reykjavíkurborg komið breyttum innheimtuháttum til leiðar. 4. Þrýsta á löggjafann að færa innheimtur meðlaga til Tryggingarstofnunar þar sem meðlögin eru greidd út, eins og tíðkast í flestum samanburðarlöndum. Þar sem Innheimtustofnun þiggur greiðslur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, vegna vangreiddra meðlagskrafna, hafa sveitarfélögin hag af því að hámarka innheimtur óháð félagslegum aðstæðum meðlagsgreiðenda, -í því skyni að hámarka greiðslur út Jöfnunarsjóði til sveitarfélaga. Er því mikilvægt að ekki sé hvati fyrir stjórnvöld að horfa fram hjá félagslegum aðstæðum umgengnisforeldra við innheimtur á meðlögum. Með yfirfærslu meðlagsinnheimtu til Tryggingarstofnunar skapast kæruleið innan stjórnsýslunnar, en eins og sakir standa geta meðlagsgreiðendur sem telja á sér brotið í viðskiptum sínum við Innheimtustofnun ekki kært íþyngjandi ákvarðanir hennar, til að mynda vegna ákvarðana um frádrátt frá útborguðum launum. 5. Að félagsþjónusta Reykjavíkurborgar mæti umgengnisforeldrum sem ekki geta framfært börn sín í gegnum umgengni með sérstökum hætti. Of algengt er að umgengnisforeldrar geti ekki veitt börnum sínum þroskavænlegar uppeldisaðstæður vegna fjárhags. Velferðarkerfið eins og það er í dag miðar við að umgengnisforeldrið sinni framfærsluskyldu sinni eingöngu í gegnum meðlagsgreiðslur. Staðreyndin er hins vegar sú að meira en 25% nýskilinna eru með jafna umgengni og er umgengni almennt að aukast ár frá ári. Umgengnisforeldrar sinna því framfærsluskyldu sinni bæði í gegnum meðlagsgreiðslur og umgengni, og er mikilvægt að velferðarkerfið taki tillit til þess. 6. Að framkvæmd fjárhagsaðstoðar Reykjavíkurborgar verði fært í lögmætt horf. Umgengnisforeldrar eru sífellt stækkandi hópur þeirra sem sækja um fjárhagsaðstoð hjá Reykjavíkurborg. Engar lagaheimildir eru til í félagsþjónustulögum um ströng skilyrði fyrir fjárhagsaðstoð. Einnig eru engar lagaheimildir til að skerða fjárhagsaðstoð ef skilyrðum er ekki mætt. Enn síður er heimild í félagsþjónustulögum að skerða fjárhagsaðstoð ef umsækjandi fer ekki að tilmælum starfsmanna félagsþjónustunnar, enda eru slíkar skerðingar stjórnsýsluviðurlög sem krefjast skýrrar lagaheimildar. Íslensk stjórnsýsla er lögbundin sem þýðir að henni ber að fara að lögum. Sveitarfélögin eru þar engin undantekning og eðlileg krafa að reglur Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð standist gildandi lög. 7. Að Reykjavíkurborg leitist við að mæta betur þörfum drengja í grunnskólakerfinu. Rannsóknir sýna að drengjum líður verr í skóla og sýna mun lakari námsárangur en stúlkur. Stefnumótun í menntamálum grunnskólabarna, hér jafnt sem í samanburðarlöndum okkar, hefur í of miklum mæli tekið mið að því að breyta drengjum og laga þá að menntastefnunni, í stað þess að menntastefnan aðlagist þörfum þeirra. Taka þarf tillit til eðlismunar kynjanna í auknum mæli, er varðar áhugasvið, virkni og námsefni. 8. Að leikskólar og frístundaheimili verði gjaldfrjáls fyrir einstæða foreldra. Harðasta gagnrýnin á tillögur um að jafna þurfi lífskjör skilnaðarforeldra er sú að einstæðir foreldrar þurfi að greiða háar fjárhæðir í leikskólagjöld og gjöld vegna dvalar á frístundarheimilum borgarinnar. Karlalistinn vill mæta þeirri gagnrýni með að fjölga leikskólum og ungbarnaleikskólum og greiða niður þau gjöld að fullu fyrir einstæða foreldra. 9. Að Reykjavíkurborg kosti athvarf eða þjónustu fyrir þá feður sem sæta umgengnistálmunum og/eða ofbeldi í nánum samböndum.
Kosningar 2018 Mest lesið Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Innlent Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Erlent Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Innlent Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Innlent Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Innlent „Þetta má aldrei gerast aftur“ Innlent Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Innlent Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Innlent Fleiri fréttir Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Nemandinn sem stakk Ingunni áfrýjar dómi Ráðþrota móðir, umtöluð rannsókn og skiltaþjófnaður Fagnar niðurstöðunni en lýsir yfir þungum áhyggjum „Þetta má aldrei gerast aftur“ Hissa ef tillaga um stjórnarslit hefði ekki komið fram Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Þrjú vilja stýra Minjastofnun Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins Bein útsending: Framtíð menntunar á tímum gervigreindar Bein útsending: Sátt um betra menntakerfi Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Nýr umboðsmaður og SI svara seðlabankastjóra Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Vilja að takmarkanir á starfsmannaleigur verði skoðaðar Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Tuttugu lyklar í Árbæjarlaug horfnir Inga segir landið að sökkva í sæ vargaldar Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Svandís Svavarsdóttir mætir í Samtalið Sjá meira