Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur í nokkur ár haft það fyrir sið að deila lista með uppáhaldslögum sínum og bókum sem hann las á árinu á Facebook-síðu sinni í árslok.
Hann brá ekki út af vananum þessi áramót og birti listann í gær. Í færslu sinni segir Obama að hann hafi haft meiri frítíma í ár en oft áður. Listinn virðist ekki vera tæmandi, heldur tekur forsetinn fyrrverandi að hann innihaldi bækur og tónlist sem stóðu upp úr á árinu.
„Ég vona að þú njótir [listans] og eigir hamingjuríkt og heilbrigt ár,“ segir Obama að lokum í færslunni og listinn fylgir í kjölfarið.
Alls hafa rúmlega 816 þúsund manns líkað við færsluna og henni hefur verið deilt tæplega 114 þúsund sinnum.
Eflaust hafa margir í hyggju að lesa meira á árinu sem nú gengur í garð og vera duglegir að auðga andann með góðri tónlist. Listi Obama gæti verið ágætis innblástur en hann er hér í heild sinni:
Bestu bækurnar 2017:
The Power eftir Naomi Alderman
Grant eftir Ron Chernow
Evicted: Poverty and Profit in the American City eftir Matthew Desmond
Janesville: An American Story eftir Amy Goldstein
Exit West eftir Mohsin Hamid
Five-Carat Soul eftir James McBride
Anything Is Possible eftir Elizabethu Strout
Dying: A Memoir eftir Cory Taylor
A Gentleman in Moscow eftir Amor Towles
Sing, Unburied, Sing eftir Jesmyn Ward
*Bónus fyrir körfuboltaaðdáendur: Coach Wooden and Me by Kareem Abdul-Jabbar and Basketball (and Other Things) eftir Shea Serrano
Uppáhaldslögin 2017:
Mi Gente með J Balvin & Willy William
Havana með Camilu Cabello (feat. Young Thug)
Blessed með Daniel Caesar
The Joke með Brandi Carlile
First World Problems með Chance The Rapper (feat. Daniel Caesar)
Rise Up með Andra Day
Wild Thoughts með DJ Khaled (feat. Rihanna and Bryson Tiller)
Family Feud með Jay-Z (feat. Beyoncé)
Humble með Kendrick Lamar
La Dame et Ses Valises með Les Amazones d’Afrique (feat. Nneka)
Unforgettable með French Montana (feat. Swae Lee)
The System Only Dreams in Total Darkness með The National
Chanel með Frank Ocean
Feel It Still með Portugal. The Man
Butterfly Effect með Travis Scott
Matter of Time með Sharon Jones & the Dap-Kings
Little Bit með Mavis Staples
Millionaire með Chris Stapleton
Sign of the Times með Harry Styles
Broken Clocks með SZA
Ordinary Love (Extraordinary Mix) með U2
*Bonus: Born in the U.S.A. með Bruce Springsteen
Það besta úr heimi bókmennta og tónlistar á árinu að mati Obama
