Það er því nóg að gera hjá keppendum og gætu þessar þrjár vikur haft mikið að seigja í baráttunni um heimsmeistaratitilinn. Þetta er í fyrsta skiptið í sögu íþróttarinnar sem haldnar eru þrjár keppnir á þremur vikum.
Fyrir franska kappaksturinn hafði Sebastian Vettel hjá Ferrari eins stiga forskot á aðal keppinaut sinn, Lewis Hamilton, sem ekur fyrir Mercedes.

Hamilton hafði þó betur á Paul Ricard brautinni og leiðir nú mótið með 14 stiga forskot á Vettel. Báðir þessir ökumenn hafa á tímabili verið með 17 stiga forskot á hinn á þessu ári. Það er því alveg ljóst að þetta einvígi mun endast út allt tímabilið, en báðir ökumenn eiga fjóra ökumannstitla í Formúlunni.
Þessir tveir virðast vera í algjörum sérflokki, þó má ekki gleyma Daniel Ricciardo sem er þriðji í mótinu og hefur nú þegar unnið tvær keppnir á sínum Red Bull.
Liðsfélagi Hamilton hjá Mercedes, Valtteri Bottas, hefur verið alveg svakalega óheppinn á árinu og situr því í fjórða sæti. Finninn var meðal annars að leiða Bakú kappaksturinn þegar að dekk sprakk á bíl hans á síðasta hring og þurfti Bottas því frá að hverfa.

Það er ljóst að Bottas hefur hraðann til að vinna. Annað er þó upp á teningnum hjá liðsfélaga Vettel hjá Ferrari, Kimi Raikkonen. Það virðist vanta allan neista í þennan 38 ára Finna, til að mynda hefur Kimi tapað sætum í fyrstu beygju í öllum keppnum ársins.
Í fyrra var það Bottas sem fagnaði öruggum sigri á Red Bull brautinni í Austurríki. Mercedes hafa haft yfirhöndina á Ferrari í kappakstrinum síðastliðin ár og Red Bull eru enn að bíða eftir heimasigri.
Ferrari og Red Bull þurfa á því að halda að vinna Mercedes bílana, þar sem þýski bílaframleiðandinn er kominn með 23. stiga forskot í keppni bílasmiða.
Æfingar, tímatökur og svo að sjálfsögðu kappaksturinn sjálfur verður allt í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport um helgina.