Í kaflanum um sannsögli fjallar Peterson meðal annars um lífslygina en kenningar um hana voru settar fram af austurríska sálfræðingnum Alfred Adler á fyrri hluta 20. aldar. Peterson skrifar: „Sá sem lifir lífslygi blekkir sýn sína á raunveruleikann.“ Peterson segir að það að vera heiðarlegur gagnvart sjálfum sér krefjist þess að standa vörð um eigin langanir og þrár og lifa ekki í sjálfsblekkingu um eigin getu, hæfni og takmarkanir.
Má ekki fullyrða að margir íbúar Vesturlanda á 21. öldinni lifi hagi lífi sínu eins og þeir lifi lífslygi því fólk forðast deilur og gerir mökum og yfirmönnum sínum til hæfis í stað þess að segja sannleikann og það sem þeim finnst? Fólk hagræðir hegðun sinni til að forðast sannsögli.
„Já, kannski ekki alltaf en fólk freistast til að losna við deilur. Sálfræðingar fást við ýmis konar vandamál en þau algengustu eru kvíði og þunglyndi og skortur á ákveðni sem ýtir undir þann vanda sem um ræðir. Fólk stendur ekki fyrir sínu og því sem það þráir. Fólk forðast deilur og tekur ekki á vandanum. Vandamálin hrannast upp umhverfis viðkomandi sem leiðir síðan til skilnaða. Fólk þraukar í hjónabandi þangað til annar makinn lýsir því yfir að hann hafi verið óhamingjusamur undanfarin átta ár. Við hefðum getað tekið á þeim vanda með vikulegum eða daglegum aðgerðum áður en vandinn varð það slæmur að skilnaður sé eina lausnin. Lagfæring á sambandi veldur deilum. Þið verðið að koma hreint fram og það leiðir deilur af sér. Þið deilið um mikilvægi starfs ykkar, frítíma ykkar, uppeldi barna ykkar, fjárhag heimilisins, agareglur, hvert þið ætlið í frí og hvað verður í matinn. Þið verðið að semja um alla slíka þætti. Sannsögli er lykilatriði því þið verðið að vita hvers báðir aðilar þarfnast. Það veldur deilum. Það eina sem er meira þreytandi en að segja sannleikann og semja við maka þinn er að láta það óátalið og bíða skilnaðarins,“ segir Jordan Peterson í viðtalinu.
Sjá má viðtal við Jordan Peterson sem sýnt var í Íslandi í dag hér fyrir neðan.