Fótbolti

Albert og félagar áfram í bikarnum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Albert spilaði í 82 mínútur í kvöld.
Albert spilaði í 82 mínútur í kvöld. vísir/getty
Albert Guðmundsson var í byrjunarliði AZ Alkmaar sem er komið áfram í hollenska bikarnum eftir 2-0 sigur á VVV-Venlo á heimavelli.

Mats Seuntjens kom AZ Alkmaar yfir í upphafi síðari hálfleiks og þremur mínútum fyrir leikslok tvöfaldaði Oussama Idrissi forystuna.

Albert spilaði fyrstu 82 mínútur leiksins en var þá skipt af velli. Hann fékk gott færi í fyrri hálfleik en brást því miður bogalistinn.

AZ Alkmaar er því komið áfram í næstu umferð og verður í pottinum er dregið verður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×