Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Vopnafarmur sem fluttur hefur verið með Air Atlanta á síðustu árum hefur ekki verið borinn saman við lista yfir vopn sem heimilt er að flytja samkvæmt alþjóðaskuldbindingum.

Dósent segir ríka rannsóknarskyldu hvíla á stjórnvöldum, en fjallað verður nánar um þetta í fréttum Stöðvar tvö klukkan hálf sjö. Þar sýnum við líka frá umfangsmikilli leit á Blágnípujökli í gærkvöldi, þar sem yfir tvö hundruð viðbragsaðilar tóku þátt í aðgerðum sem voru með þeim flóknustu sem þekkjast.

Loks hittum við málleysingja og dýravini sem glöddust í dag, þegar gæludýr voru í fyrsta sinn boðin velkomin í Strætó og kattakaffihús var opnað í miðbæ Reykjavíkur.

Þetta og margt fleira í fréttum Stöðvar tvö í opinni dagskrá klukkan 18.30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×