Eru vel tengdir hverri einustu plöntu Stefán Þór Hjartarson skrifar 8. febrúar 2018 12:00 Hugmyndin varð til í gegnum verkefni í háskólanum en er nú fyrirtæki með mikla sérstöðu. Vísir/Eyþór
Fyrirtækið Jurt Hydroponics fór í gegnum viðskiptahraðalinn Startup Reykjavík árið 2015 og er nú annar tveggja framleiðenda wasabi í Evrópu, en þessi japanska planta er ekki auðræktuð. Fyrirtækið stefnir á að hefja útflutning til allra Norðurlandanna á þessu ári. „Við byrjuðum 2015 á þessu í gegnum háskólann. Við vorum upphaflega bara að vinna verkefni um hvernig væri hægt að nota auðlindirnar sem við höfum hérna á Íslandi til útflutnings. Þá fórum við svolítið að skoða hvaða ræktunarafurðir væru í boði og lentum á þessu eftir svolitla leit,“ segir Sindri Hansen, annar stofnenda Jurt Hydroponics sem framleiðir wasabi-jurtina undir merkjum Nordic Wasabi. Með honum í framleiðslunni er Ragnar Atli Tómasson. Þeir fóru í gegnum Startup Reykjavík viðskiptahraðalinn með hugmyndina árið 2015 og segjast hafa grætt helling á því. „Maður lærði eitthvað nýtt á hverjum degi og þetta kom okkur ótrúlega vel af stað. Það kom sér líka mjög vel eftir prógrammið þegar við vorum að kynna okkur fyrir fjárfestum og fleirum. Þetta er mjög góður stimpill.“ Fisk- og Grillmarkaðinum kynntust þeir mjög snemma í ferlinu enda hreifst Hrefna Sætran, eigandi staðanna, strax af hugmyndinni um að geta notað íslenskt wasabi, bæði vegna þess hve sérstakt hráefnið er og að það er íslensk framleiðsla. Þeir segja að wasabi sé ekki bara meðlæti með sushi heldur sé hægt að nota það í steikur og með öllum fiski – það sé einstaklega vinsælt í alls konar „fusion“ matargerð. Einnig er wasabi notað í kokteila – á Fisk- og Grillmarkaðinum er það til dæmis notað í Nordic wasabi martini og svo er á Fiskmarkaðinum boðið upp á Wasabi mule, sem er eins og klassíski kokteillinn Moscow mule nema með wasabi. „Við erum núna byrjaðir að selja í Danmörku og stefnum á að selja í öllum Norðurlöndunum núna á þessu ári,“ segir Sindri aðspurður hvernig gangi að selja wasabi-ið utan Íslands. Þeir eru í dag aðrir af tveimur ræktendum wasabi í Evrópu – en langstærstur hluti wasabi-framleiðslunnar fer auðvitað fram í Japan þaðan sem plantan er ættuð.Jurt Hydroponics er annar tveggja framleiðenda wasabi í Evrópu.Vísir/EyþórFramleiðslan fer fram í gróðurhúsi á Egilsstöðum, en wasabi er oft sögð vera erfiðust allra plantna að rækta, þannig að það er ekkert verið að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. „Stærsta vandamálið við ræktunina er að plantan er gríðarlega viðkvæm og þarf mjög þröng umhverfisskilyrði til að þrífast, annars drepst hún. Þetta er ræktað í hátæknigróðurhúsi. Þar eru stýringar og allt saman sjálfvirkt og nettengt, þannig að við erum bara með þetta í símanum okkar á meðan við erum hérna á skrifstofunni í Reykjavík. Við erum reyndar með starfsmann fyrir austan,“ segir Ragnar og bætir við að það þurfi um 400 lítra af vatni fyrir hvert kíló af wasabi – þannig að það megi kalla þetta vatnsútflutningsfyrirtæki í rauninni. Plantan þarf kaldara loftslag en flest grænmeti sem framleitt er í gróðurhúsum hér á landi – það er oftast ræktað við 30 gráður á meðan wasabi plumar sig best við um 15 gráður – þannig að íslenska loftslagið hentar ágætlega. Er wasabi-ið algjörlega búið að hitta ykkur í hjartastað? „Algjörlega. Við erum búnir að lifa og hrærast í þessum wasabi-heimi síðan 2015, það er orðinn svolítill tími með plöntunni,“ segir Sindri og Ragnar bætir við að þeir hafi sett niður hverja einustu plöntu í gróðurhúsinu, „þannig að við erum vel tengdir plöntunum“. „Við erum svona eins og sauðfjárbændurnir og þekkjum hverja einustu plöntu með nafni,“ játar Sindri. Aðspurðir um hver munurinn á wasabi-plöntunni og þessu græna jukki sem er í boði á sushi-stöðum bæjarins sé kemur þessi væntumþykja þeirra í garð plöntunnar skýrt í ljós og ekki stendur á svörum: „Munurinn á því er að borða hundrað prósent hreint grænmeti, sem er okkar afurð, versus mjög unna verksmiðjuframleiðslu með matarlit.“ Þeir segja bragðið töluvert ólíkt þó að „kikkið“ sé til staðar í báðum afurðunum. „Það er miklu meira sinnepsbragð af þessu „fake“ wasabi – en það er meira náttúrulegur sætur undirtónn og jarðbragð af alvöru wasabi.“ Startup Reykjavík viðskiptahraðallinn hefst þann 11. júlí en opnað hefur verið fyrir umsóknir.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hvar er opið um páskana? Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Systkinin öll verið forsetar: „Tvö félög, tvöfalt stuð!“ Atvinnulíf Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Samstarf Boða alvöru breytingar í jafnréttismálum efnahags- og atvinnulífs Atvinnulíf Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Viðskipti innlent Ölgerðin ræður tvo markaðsstjóra Viðskipti innlent Ósáttur við aukna gjaldtöku við flugvöllinn fyrir leigubílstjóra Neytendur Sunna veitir Livio samkeppni í frjósemi Viðskipti innlent Tímamótasamkomulag um að draga úr losun skipaflotans Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ölgerðin ræður tvo markaðsstjóra Íslenskur kauphallarsjóður á markað í Bandaríkjunum Ekkert samtal í gangi milli stjórnvalda og sjávarútvegs VÍS opnar aftur skrifstofu á Akranesi KS fyrstir til að nýta sér nýja varaleið um gervihnetti Jón Guðni tekur við formennsku Algengast að óljósar starfslýsingar valdi togstreitu og gremju Sigurjón Örn tekur við af Sveini hjá Kletti „Þar skeikar milljörðum í vanmati ráðuneytisins“ Hætta við flug til Madeira, Pula, Düsseldorf og Hamborgar Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Um 80 prósent vilja að gjöld útgerða taki mið af raunverulegu aflaverðmæti Álögur ríkisins á bankana lendi að miklu leyti á almenningi Þriggja ára fangelsi og tveggja milljarða sekt Stofnandinn búinn að eignast Mandi á ný Matvælastofnun gerir ekki athugsemdir við kjötvinnslu í Álfabakka Íslandshótel taka að óbreyttu yfir rekstur Nordica og Natura Ánægjulegt að breið sátt liggi fyrir um uppgjör vegna ÍL-sjóðs Hafa samþykkt tillögu um uppgjör ríkisins á bréfum ÍL-sjóðs Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Sýknaður í Ímon-málinu tíu árum seinna Bein útsending: Vorfundur RARIK - Hreyfum samfélagið til framtíðar Milljarðaafgangur og besta niðurstaðan í sautján ár Enginn sjái eftir því á dánarbeðinum að hafa ekki unnið meira Mögulega leikflétta og eða viðbrögð við lækkunum Miðlunarlónin standa öll mun betur en á horfðist Bein útsending: Hlýtur Carbfix Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna? Penninn leggst í miklar breytingar Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Sjá meira