Innlent

Hátt í þrjúhundruð dauðsföll af völdum vímuefna síðasta áratug

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Alls létust 272 af völdum vímuefna hér á landi síðustu tíu ár en áratuginn á undan voru skráð dauðsföll alls 163 samkvæmt upplýsingum frá Landlækni. Skráning á slíku tilvikum hefur þó verið mun ítarlegri síðustu ár segir Ólafur B. Einarsson verkefnastjóri hjá embættinu.

Hann segir að dauðsföllum af völdum vímuefna hafi fjölgað síðustu mánuði, meirihluti þeirra sé vegna morfínsskyldra lyfja.

„Í janúar sjáum við aðþað eru komin til skoðunar átta lyfjatengd andlát sem er mikill toppur miðað við árin á undan.“

Ólafur segir að eitt dauðsfall hafi verið skráð í febrúar en ennþá eigi eftir að berast upplýsingar um síðustu mánuði.  Guðrún Björg Ágústsdóttir, áfengis og vímuefnaráðgjafi í Foreldrahúsi, segir foreldra ungmenna safna reglulega slíkum tölum. 

„Ég hef heyrt tölur frá áramótum alveg frá tíu upp í fimmtán.“ 

Mótefni væntanlegt

Jón Magnús Kristjánsson yfirlæknir bráðadeildar Landsspítalans sagði í fréttum okkar í gær að hægt væri að koma í veg fyrir dauðsföll með mótefninu Nalaxone við öndunarstoppi af völdum morfínsskyldra lyfja. Ólafur segir Landlæknisembættið hlynnt öllum úrræðum sem bjargi mannslífum og fleiri séu jákvæðir.

„Mér skilst að Lyfjastofnun sé að skoða að útvega það á markað.“

Svala Jóhannesdóttir verkefnastjóri hjá frú Ragnheiði segir að Rauði krossinn hafi þegar óskað eftir að lyfið fari í almenna dreifingu. Hún fær reglulega símtöl frá fólki sem vill útvega sér slíkt mótefni.

„Skjólstæðingar okkar eru að hafa samband við okkur oft í viku og óska eftir því að fámótefnið Nalaxone, þau eru orðin svo hrædd. Þau hafa upplifað svo mörg tilfelli þar sem fólk er að ofskammta eða þau eru sjálf að ofskammta og þau langar svo að hafa tæki og tól í höndunum til að geta brugðist við og bjargað mannslífum. “ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×