Selfoss í erfiðum málum eftir tap á Akureyri Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 7. september 2018 19:38 Jóhann skorar alltaf mörk syngja stuðningsmenn Þórs. Hann skoraði sigurmarkið í kvöld vísir/daníel
Selfyssingar náðu ekki að laga stöðu sína í fallbaráttunni í Inkasso deild karla í kvöld. Liðið tapaði fyrir Þór á Akureyri. Þór á ennþá tölfræðilegan möguleika á því að taka annað sætið af HK eftir 2-1 sigur á Sunnlendingum. Þórsarar fara upp fyrir Þrótt í fjórða sætið með 37 stig. Þeir eru þá fimm stigum á eftir HK þegar Þór á eftir tvo leiki en HK mætir Fram í kvöld. Ef HK vinnur þann leik er vonin, sem var orðin dauf, úti fyrir Þórsara. Fyrsta mark leiksins á Akureyri í kvöld var heimamanna. Alvaro Montejo lagði boltann fyrir Nacho Gil með brjóstkassanum og landi hans kláraði vel í marknetið. Selfyssingar svöruðu strax þremur mínútum seinna. Hrovje Tokic og Kenan Turudija léku varnarmenn Þórsara grátt og sá fyrrnefndi jafnaði metin á 38. mínútu. Sigurmarkið kom undir lok leiksins, Jóhann Helgi Hannesson skoraði það eftir sendingu frá Montejo inn á teiginn. Selfoss situr eftir í fallsæti og Magni getur sent Selfyssinga í botnsætið með sigri á Njarðvík á morgun. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Íslenski boltinn Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Hefur Ben Simmons náð botninum? Körfubolti Russell á ráspól í fyrramálið Formúla 1 Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Fótbolti Andy Murray þjálfar erkióvininn Sport Fleiri fréttir Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Sjá meira