ESB gefur unglingum Interrail miða til að auka víðsýni Gunnar Hrafn Jónsson skrifar 4. júlí 2018 13:06 Interrail nýtur mikilla vinsælda meðal evrópskra ungmenna Vísir/Instagram
Fimmtán þúsund evrópskir unglingar fá ókeypis Interrail lestarmiða í sumar í boði Evrópusambandsins. Meira en hundrað þúsund unglingar sóttu um miða og því ljóst að fæstum varð að ósk sinni. ESB ætlar hins vegar að stórauka fjárveitingar til verkefnisins á næstu árum og stefnt er að því að bjóða mörg hundruð þúsund ungmennum að ferðast ókeypis um álfuna sína á hverju ári. Interrail lestarkerfið gerir ferðalöngum kleift að borga fast gjald fyrir ótakmarkaðar ferðir og sjá þannig eins stóran hluta Evrópu og hægt er að komast yfir á einu sumri. Þetta er hægt vegna samstarfssamninga meira en 35 mismunandi fyrirtækja sem reka lestarkerfi um alla Evrópu. Ferjur eru einnig hluti af leiðakerfinu. Til að eiga möguleika á ókeypis miða þarf umsækjandinn að vera átján ára gamall og svara nokkrum spurningum um evrópska menningu og arfleið. Á heimasíðunni DiscoverEU segir að tilgangurinn sé ekki síst að vinna gegn lýðskrumi og hræðsluáróðri. Unga fólkið geti þarna kynnst af eigin raun hversu mikilvæg opin landamæri og ferðafrelsi séu. Auk þess kynnist þau fjölskrúðugu mannlífi og mismunandi menningu, sem sé öllum holt. Andstæðingar ESB gagnrýna verkefnið hins vegar harðlega og segja að þarna sé skattfé varið í áróður. Nær væri að fjárfesta í atvinnuuppbyggingu en lestarmiðum.
Mest lesið Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Netanyahu heitir hefndum Erlent Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Erlent Leggja til neyðaraðgerðir til að bregðast við „ófremdarástandi“ Innlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent „Með því alvarlegra sem ég hef séð frá Vinnueftirlitinu“ Innlent Segir gagnrýnina ósvífna og ósanngjarna Innlent Mælirinn fullur vegna vanvirðingar á slysstað Innlent Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Erlent Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Erlent Fleiri fréttir Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Sjá meira