Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur boðað til aukafundar í dag. Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur hefur verið boðaður á fundinn en á honum verður rætt mál sem varðar uppsögn framkvæmdastjóra Orku náttúrunnar.
Brynhildur Davíðsdóttir, stjórnarformaður OR, segir í samtali við Vísi að fundurinn verði síðdegis í dag.
„Við tökum þetta mál gríðarlega alvarlega eins og sést á viðbrögðum stjórnar ON,“ segir Brynhildur.
Stjórn Orku náttúrunnar ákvað að segja framkvæmdastjóranum Bjarna Má Júlíussyni upp störfum á miðvikudag vegna óeðlilegrar hegðunar í garð starfsfólks.
Á þriðjudag boðaði Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, Einar Bárðarson til fundar vegna starfsloka eiginkonu hans hjá ON. Þar var hegðun Bjarna Más Júlíussonar rædd.
Einar Bárðarson birti skrif á Facebook um upplifun sína af fundinum með Bjarna Bjarnasyni. Þar sagði Einar að forstjóri OR hefði tekið fálega í frásögn hans af framkvæmdastjóranum.
Bjarni Bjarnason hafnaði þeirri fullyrðingu Einars í samtali við Vísi í gær. Sagði Bjarni að hann hefði tjáð Einari að hann liti málið mjög alvarlegum augum. Bjarni er stjórnarformaður ON og boðaði stjórnin til fundar á miðvikudag. Þar var ákvörðun tekin um að segja Bjarna Má Júlíussyni upp störfum.
Vísir ræddi við Bjarna Má í gær þar sem hann sagðist sleginn yfir þeirri atburðarás sem leiddi til starfsloka hans hjá fyrirtækinu. Bjarni Már viðurkenndi að hafa gert mistök í samskiptum sínum við kvenundirmenn sína en sagðist þó ekki vera „dónakall“ líkt og hann hefur verið sakaður um.
Innlent
Stjórn OR boðar forstjórann til aukafundar
Tengdar fréttir
Viðurkennir mistök en segist ekki vera dónakall
Bjarni Már Júlíusson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur, segist mjög sleginn yfir þeirri atburðarás sem leitt hafi til starfsloka hans hjá fyrirtækinu.
Bjarni rekinn frá ON eftir "óviðeigandi hegðun“
Bjarna Má Júlíussyni hefur verið vikið úr starfi framkvæmdastjóra Orku Náttúrunnar eftir óviðeigandi hegðun í garð starfsmanna.
Þórdís Lóa vill að ON-karlar komist að því hvar Davíð keypti ölið
Málið sem tengist brottvikningu framkvæmdastjóra ON verður tekið fyrir á stjórnarfundi OR.
Forstjóri Orkuveitunnar upplifði fundinn ekki eins og Einar
Segist hafa tekið orð Einars um óeðlilega hegðun mjög alvarlega.