Forseti sveitarstjórnar stígur til hliðar Jóhann K. Jóhannsson og Kristín Ólafsdóttir skrifa 14. september 2018 23:00 Frá Húsavík, þar sem Örlygur Hnefill rekur Hótel Cape. Vísir/GVA
Örlygur Hnefill Örlygsson, forseti sveitarstjórnar Norðurþings, ætlar að stíga til hliðar á sveitarstjórnarfundi sveitarfélagsins á þriðjudag og óskar leyfis í kjölfar samskipta sem hann átti við starfsmann sveitarfélagsins fyrr í sumar. Þetta staðfesti Örlygur í samtali við fréttastofu í kvöld og segist hafa farið fram úr sjálfum sér í samtali við starfsmanninn. Samskiptin átti Örlygur við framkvæmdaraðila sveitarfélagsins og tengjast þau jarðvegsvinnu í kringum Hótel Cape sem Örlygur á og rekur á Húsavík. Örlygur Hnefill Örlygsson. Fyrr í sumar sumar hófst malbikunarvinna í kringum hótelið sem hefur að sögn Örlygs Hnefils dregist úr hófi fram bæði í tíma og fjármunum. Þá er framkvæmdunum enn ekki lokið. Örlygur Hnefill segir í samtali við fréttastofu að gestir hótelsins hafi orðið fyrir töluverðu ónæði vegna framkvæmdanna. Þá hafi samskipti Örlygs Hnefils við umræddan framvæmdafulltrúa átt sér stað fyrir um mánuði síðan. Örlygur Hnefill segir að hann hafi strax áttað sig á því að hann hafi farið fram úr sér í samskiptum við starfsmanninn og sér eftir viðbrögðum sínum. Örlygur Hnefill hefur gegnt stöðu forseta sveitarstjórnar Norðurþings fyrir Sjálfstæðisflokkinn síðan árið 2017. Þar áður hafði hann setið í sveitarstjórn Norðurþings frá árinu 2014.
Norðurþing Sveitarstjórnarmál Mest lesið „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Innlent Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Erlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Innlent Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Innlent Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Innlent Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Innlent Fleiri fréttir Stór skjálfti í Bárðarbungu Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Veðmál barna og verslunarmiðstöð í Vogum Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Segir málefnasamninginn ófjármagnað orðagjálfur Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Vilja skýrslu frá ráðherra um lokun flugbrautar Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Tíu ára stelpa frá Vík í úrslitum í Eurovision barna í Danmörku Samþykktu að breyta skráningu svo þiggja megi styrki Fer fram á stjórnsýsluúttekt á aðdraganda lokunarinnar Stjórnsýsluúttekt á lokun flugbrautarinnar og endurgreiðsla styrkja Skora á fulltrúa sveitarfélaganna að greina frá sinni afstöðu „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Kennarar gengu út og nýr borgarstjórnarmeirihluti Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Svona skipta oddvitarnir stólunum Voru búin að segja að þeim hugnaðist ekki tillaga Ástráðs Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur“ Sjá meira