Íslenski boltinn

Pepsi-mörkin: Keflavík að ganga í gegnum helvíti

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Keflvíkingar eru enn án sigurs í Pepsi-deild karla í fótbolta eftir 3-0 tap gegn Grindavík í gærkvöldi í lokaleik 13. umferðar. Keflavík er með þrjú stig eftir þrettán leiki.

Hörður Magnússon, umsjónarmaður Pepsi-markanna á Stöð 2 Sport, spurði sérfræðinga sína Reyni Leósson og Frey Alexandersson í þætti gærkvöldsins hvort einhver í þessu liði væri hreinlega nógu góður fyrir deildina.

„Það eru nokkrir leikmenn í liðinu sem eru nógu góðir fyrir Pepsi-deildina en það eru líka fullt af strákum þarna sem eru ekki tilbúnir og það er verið að blóðga þá,“ svaraði Freyr Alexandersson. „Þeir eru að ganga í gegnum helvíti. Það er bara þannig. Það gengur ekkert upp, þeir eru svo gott sem fallnir og ekki búnir að skora mark síðan 4. júní.“

Freyr sagði ósanngjarnt að meta hvern og einn leikmann í þessu liði miðað við það sem er í gangi en Suðurnesjamenn verða að fara að rífa sig í gang.

„Það er ekki hægt að dæma einstaklingana í þessu liði því akkurat núna er þetta ekkert lið. Það sem að Eysteinn er að reyna að gera er að búa til betra lið og að reyna að fá samfélagið með sér,“ sagði Freyr. „Það skiptir máli því Keflavík er stolt samfélag og þeir verða að fara út úr þessu móti með stolti hvort sem að þeir haldi sér uppi eða ekki.“

Reynir Leósson tók undir með Frey en finnst þó algjört lágmark að Keflavíkurliðið sýni baráttuanda. Það er það minnsta sem hægt er að gera miðað við hvernig staðan er.

„Eitt finnst mér vanta. Þú getur alltaf sett hjarta í þetta á vellinum. Keflavík er aldrei að fara að bjarga sér og er ekki að fara að vinna marga leiki í sumar. Mér finnst vanta hjarta og baráttu. Ef þeir koma með það inn á völlinn geta þeir gengið svona sæmilega stoltir frá borði,“ sagði Reynir Leósson.

Alla umræðuna má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir

Eysteinn Húni: Megum ekki fara í neina sjálfsvorkunn

"Þetta er mjög súrt og óþolandi en ég verð að taka ábyrgðina á þessu. Ég ákvað að keyra inn í leikinn, fara ofar með liðið og í byrjun leiks fáum við tækifæri. Ef við hefðum skorað þá hefði þetta verið breyttur leikur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×