Áslaugu Thelmu Einarsdóttur, fyrrverandi forstöðumanni hjá Orku náttúrunnar, var sagt upp vegna frammistöðuvanda. Þetta hefur RÚV upp úr tölvupóstsamskiptum lögmanns hennar, Sigurðar G. Guðjónssonar, og Helgu Jónsdóttur, starfandi forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, frá því í morgun. Þar er vitnað í kafla úr skýrslu Innri endurskoðunar sem enn hefur ekki verið birtur.
RÚV hefur eftir Sigurði í tölvupósti sem hann sendi Helgu að uppsögn Áslaugar Thelmu sé ólögmæt, og því varla réttmæt. Því sé Áslaug Thelma samkvæmt lögum enn starfsmaður ON en í einhvers konar leyfi.
Einnig telur Sigurður að skýrsla innri endurskoðunar staðfesti að ekki hafi verið brugðist við kvörtunum Áslaugar Thelmu vegna óviðeigandi hegðunar Bjarna Más Júlíussonar, þáverandi framkvæmdastjóra OR og yfirmanns Áslaugar Thelmu. Jafnframt hafi ekki farið fram úttekt í kjölfar kvörtunarinnar þar sem fagleg afstaða var tekin til efnis hennar.
Þá rekur Sigurður ákvæði 27. gr. jafnréttislaga, sem bannar uppsögn o.fl. vegna kæru eða leiðréttingarkröfu. Í svari sínu segir Helga að fjallað sé um 27. grein jafnréttislaga í skýrslu innri endurskoðunar. Í kafla um uppsögn Áslaugar Thelmu, sem ekki hefur verið birtur segi: „Á þeim grundvelli er það niðurstaða innri endurskoðunar að uppsögn vegna frammistöðuvanda hafi verið réttmæt.
Ekki náðist í Sigurð G. Guðjónsson, lögmann Áslaugar Thelmu, við vinnslu þessarar fréttar.
Haukar
Galychanka Lviv