Ný verðkönnun Verðlagseftirlits ASÍ sýnir að mjög mikill verðmunur er á hinum ýmsu vörum í öllum vöruflokkum.
Í frétt á vef ASÍ um verðmuninn á matarkörfunni kemur fram að í 52 tilvikum af 100 var yfir 40 prósent munur á hæsta og lægsta verði. Í 24 tilvikum var verðmunurinn svo yfir 70 prósent.
Iceland var oftast með hæsta verðið, eða í 35 tilvikum af 100. Bónus var svo oftast með lægsta verðið, eða í 63 tilvikum af 100. Hagkaup var sú verslun sem var næstoftast með hæsta verðið, eða í 21 tilviki af 100. Verðkönnunin var framkvæmd í átta stærstu verslunum landsins.
Þá sýnir samanburður á lítilli vörukörfu með þrettán vörum að hún er 3.108 krónum ódýrari í Bónus heldur en Iceland.
Vörukarfa þessi inniheldur vörur eins og brauð, djús, kjötbollur, banana, cheerios, handsápu og þvottaefni. Verðmuninn má sjá í töflunni hér fyrir neðan.
Iceland Bónus Verðmunur í % Verðmunur í krónum
Fitty samlokubrauð - 500 gr 499 349 43% 150
Tíðartappar OB original 16 stk 449 259 73% 190
Neutral storvask ódýrasta kílóverð 705 410 72% 295
Handsápa Palmolive Almond milk
m/pumpu 300 ml 399 229 74% 170
Cheerios - ódýrasta kg verð 1.542 750 106% 792
Neutral storvask ódýrasta kílóverð 705 410 72% 295
St. Dalfour bláberja sulta 284 gr 669 398 68% 271
Trópí tríó - 3pl (250 ml *3) 369 195 89% 174
1944 - Hakkbollur í brúnni sósu
m. kartöflumús 729 595 23% 134
Góu Hraunbitar 349 223 57% 126
Bananar 399 179 123% 220
Lyle's golden syrup 454 gr dós 399 189 111% 210
Knorr Aromat 90 gr. staukur 329 249 32% 80
Verðmunur á vörukörfu 3.108
Á vef ASÍ segir að niðurstöður verðkönnunarinnar séu „sláandi“ enda sýni þær að gríðarlegur verðmunur sé á flestum vörunum í könnuninni.
„Á mörgum vörum var yfir 40% verðmunur milli dýrasta og ódýrasta valkostsins og 70% verðmunur var á fjórðungi varanna. 100% verðmunur var á frosnu lambalæri, lægsta verðið mátti finna í Bónus og í Nettó þar sem það kostaði 1.098 kr. en hæsta verðið var í í Kjörbúðinni Sandgerði þar sem það kostaði 2.109 kr. Litlu ódýrara var það í Hagkaup þar sem kílóverðið var 2.099 krónur. Munur á hæsta og lægsta verði á svínakótilettum var 64%, lægst var verðið í Krónunni, 1.399 kr. kg en hæst var það í Iceland á 2.299 kr. Þá var 42% eða 801 kr. verðmunur á ferskum laxi, lægsta verðið var í Nettó, 1.898 kr. en það hæsta í Iceland 2.698 kr. en Hagkaup var einungis einni krónu lægra með 2.698 kr. kílóið. Mjög mikill verðmunur var einnig á ávöxtum og grænmeti, drykkjarvörum, þurrvörum og dósamat, brauði og kextmeti,“ segir á vef ASÍ en töfluna í heild sinni má sjá hér.
„Sláandi“ verðmunur á matvöru í nýrri verðkönnun ASÍ
Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
![ASÍ segir verðmuninn í könnuninni sláandi.](https://www.visir.is/i/EAF23DF8879B0CB8E8438F4D4F21F84A3B7B7B15CC267037EEF8B85D19FC3859_713x0.jpg)