Lífið

Fjögurra ára gömul klippa af kynferðislegri áreitni X Factor-dómara vekur reiði netverja

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Mel B stöðvaði að endingu viðtalið og byrsti sig við Walsh.
Mel B stöðvaði að endingu viðtalið og byrsti sig við Walsh. Skjáskot/Youtube

Í myndbandinu sést Walsh, umboðsmaður og framleiðandi, þukla á rassi Mel B, söngkonu og fyrrverandi Kryddpíu, sem bregst ókvæða við, og hefur klippan nú komið af stað umræðu um kynferðislega áreitni.

Vakin var athygli á myndbandinu á Twitter á sunnudag og þegar þetta er skrifað hafa nær 250 þúsund manns „líkað“ við færsluna. Myndbandinu er deilt í tístinu og við það er skrifað „Kynferðisleg áreitni í beinni útsendingu, góðir hálsar.“

Klippuna má einnig sjá með hljóði hér að neðan en þar sést hvernig Walsh hvílir hönd sína á rassi Mel B, sem þykir það bersýnilega óþægilegt, í töluverðan tíma. Að endingu stöðvar Mel B viðtalið og spyr Walsh af hverju hann sé að grípa um afturendann á sér.

Umræddur Twitter-notandi, @dys_nania, bætir því einnig við að þrátt fyrir að atvik á borð við þetta gerist frammi fyrir allra augum neiti menn enn þá að horfast í augu við það hversu oft slík áreitni fer fram á bak við luktar dyr. Sjálf þurfti Mel B að fá nálgunarbann gegn fyrrverandi eiginmanni sínum, Stephen Belafonte, í fyrra en hann mun hafa beitt hana mjög alvarlegu ofbeldi í áraraðir.

Margir taka undir með Twitter-notandanum en aðrir gagnrýna Mel B fyrir viðbrögð hennar. Einn Twitter-notandi sagði hana til að mynda hafa „gert manninn vandræðalegan.“

Youtube-stjörnurnar Ethan og Hila Klein, sem halda úti rásinni H3H3productions, ræddu áreitni Walsh í hlaðvarpsþætti sínum áður en myndbandið fór í dreifingu á Twitter. Þau skipuðu sér í hóp þeirra sem hafa gagnrýnt Walsh harðlega, sem virðist töluvert fjölmennari hópur en þeir sem eru á öndverðum meiði. Upptöku úr hlaðvarpinu má horfa á í spilaranum hér að neðan.

Hvorki Mel B né Walsh hafa tjáð sig um myndbandið, hvorki nú né fyrir fjórum árum. Þá vakti atvikið ekki viðlíka athygli þegar það var sýnt í sjónvarpi árið 2014, enda var umræða í anda #MeToo-hreyfingarinnar þá styttra á veg kominn en árið 2018.

Mel B starfaði sem dómari í bæði bresku og áströlsku þáttaröðum X Factor á árunum 2011-2016. Walsh tilkynnti í júní síðastliðnum að hann hygðist láta af störfum sem dómari þáttanna.


Tengdar fréttir

Sharon Osbourne verður í dómarateyminu í X-Factor

Simon Cowell hefur nú staðfest að Sharon Osbourne verði dómari á nýjan leik í raunveruleikaþáttunum X-Factor Uk en hún var hluti af upprunalegu dómurunum í þáttunum sem hófu göngu sína árið 2004.

Cowell vill aftur gamla gengið

Simon Cowell vill fá Louis Walsh og Sharon Osbourne til að setjast aftur í dómarasætin í raunveruleikaþáttunum X-Factor UK.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.