Nær hún fjórðu tvennunni í röð í kvöld? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2018 15:15 Elín Metta Jensen hefur raðað inn mörkum í Pepsi-deildinni að undanförnu. vísir/ernir
Elín Metta Jensen hefur farið á kostum í sigurgöngu Valskvenna í Pepsi-deild kvenna og Valsliðið treystir á hana í stórleiknum á móti Þór/KA í kvöld. Valur tekur á móti toppliði Þór/KA í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 18.00 og kemst á topp deildarinnar með sigri. Valskonur eru einu stigi á eftir norðankonum fyrir leikinn. Þór/KA komst aftur í toppsætið eftir 2-0 sigur á Breiðabliki á heimavelli eftir að hafa misstigið sig í síðasta útileiknum sínum sem fór fram á Selfossi og endaði með markalausu jafntefli. Þór/KA liðið getur náð fjögurra stiga forystu með sigri en þá þurfa þær að stoppa heitasta lið Pepsi-deildarinnar. Valsliðið hefur unnið fimm deildarleiki í röð og Elín Metta Jensen hefur skorað í þeim öllum eða samtals átta mörk. Valskonur hafa skorað 16 mörk í þessum fimm leikjum eða 3,2 mörk að meðaltali í leik. Elín Metta hefur þar af skorað tvennu í síðustu þremur leikjum Valsliðsins og á því möguleika á fjórðu tvennunni í röð í kvöld. Með þessum átta mörkum hefur Elín Metta náð efsta sætinu á markakóngstitlinum en hún komst upp fyrir Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur í síðustu umferð.Elín Metta Jensen í síðustu fimm leikjum Valsliðsins:3-0 sigur á Grindavík 1 mark og 1 fiskað víti2-0 sigur á HK/Víkingi 1 mark, 1 stoðsending og 1 fiskað víti3-1 sigur á ÍBV 2 mörk og 1 fiskað víti4-0 sigur á KR 2 mörk4-2 sigur á FH 2 mörk og 1 stoðsendingSamtals í þessum fimm leikjum 8 mörk 3 fiskuð víti 2 stoðsendingar
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Körfubolti Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Fótbolti Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Handbolti Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus Fótbolti Dagskráin í dag: Lengjubikar kvenna, úrvalsdeildin í keilu og NBA Sport Fleiri fréttir Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Vestri fær bakvörð frá Svíþjóð Sjá meira