Fótbolti

Tvífari Zlatans fær ekki frið frá æstum aðdáendum Svíans

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Því er ekki að neita að þeir eru skrambi líkir.
Því er ekki að neita að þeir eru skrambi líkir. vísir/getty
Körfuboltakappinn Nihad Dedovic gerir það gott í sinni íþrótt enda spilar hann körfubolta með þýska liðinu Bayern München.

Það sem gerir líf hans þó afar flókið er sú staðreynd að hann er nauðalíkur Svíanum Zlatan Ibrahimovic.





Svo mikið reyndar að hann fær ekki frið frá æstum aðdáendum Zlatans sem telja sig vera að hitta goðið.

Zlatan spilaði með PSG í París og þegar Dedovic fór þangað fékk hann ekki stundarfrið. Hann tekur þessu þó með jafnaðargeði eins og sjá má hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×