Kjörsókn í íbúakosningu sem haldin er í dag í Árborg var 40,14% klukkan 17:00.
Í tilkynningu frá yfirkjörstjórn Árborgar segir að þessi tala innihaldi ekki utankjörfundaratkvæði og má því búast við um 50% þáttöku í kosningunum.
Kosið er í sex kjördeildum um breytingar á skipulagi miðbæjar Selfoss. Aðeins tveir dagar eru síðan bæjarstjórn breytti áður auglýstum fyrirvörum, í spurningum á kjörseðli. Formaður yfirkjörstjórnar sagði það þó ekki hafa áhrif á framkvæmd kosninganna.
Haukar
Galychanka Lviv