Fjárhagsstaða heimilanna ekki verið betri í tvo áratugi Þorbjörn Þórðarson skrifar 12. apríl 2018 18:30
Fjárhagsstaða íslenskra heimila hefur ekki verið sterkari í tvo áratugi. Þetta segir framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika hjá Seðlabanka Íslands. Skuldsetning er að minnka og sparnaður heimilanna heldur áfram að aukast.Nýjasta hefti Fjármálastöðugleika, rits Seðlabankans um sama efni, kom út í dag. Í ritinu kemur fram að seint á árinu 2016 hafi skuldir heimilanna tekið að aukast en fram að því höfðu þær lækkað jafnt og þétt frá árinu 2009. Á árunum 2010-2016 lækkuðu skuldir heimilanna sem hlutfall af landsframleiðslu að meðaltali um 7 prósentur á ári, mest um 12 prósentur á árinu 2015. Kröftugur vöxtur hefur verið í einkaneyslu að undanförnu og gerir Seðlabankinn ráð fyrir að sú þróun haldi áfram í einhvern tíma. Á móti kemur að allt fram á síðasta ár jókst kaupmáttur ráðstöfunartekna hraðar en einkaneysla sem skilaði sér í auknum sparnaði. Þannig jukust innlán heimilanna um 11,4 prósent í fyrra. Harpa Jónsdóttir framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika segir að sterk heimilanna um þessar mundir eigi sér margar birtingarmyndir. „Fjárhagsstaða heimilanna er sú sterkasta sem við höfum séð í tuttugu ár. Skuldir sem hlutfall af landsframleiðslu hafa ekki verið lægri og skuldir sem hlutfall af tekjum hafa heldur ekki verið lægri. Á sama tíma sjáum við að eignastaða heimilanna, hrein eign þeirra, er sú mesta sem við höfum séð í tuttugu ár,“ segir Harpa.
Mest lesið Kilroy hafi eitt ferðamönnum rangar upplýsingar Neytendur Að kúpla okkur frá vinnu um jólin Atvinnulíf Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Viðskipti innlent Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Bölvað basl á Bond Viðskipti erlent Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Viðskipti erlent Innkalla sviðasultu vegna gruns um listeríu Neytendur Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Viðskipti innlent Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS Viðskipti erlent Fleiri fréttir Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Discover hefur flug milli München og Íslands Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Hluthafarnir samþykkja samruna Marels við JBT Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Elma Sif til Stika Solutions Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Vonar að allir pakkar berist til þeirra fyrir jól Kortleggja tómar íbúðir í samstarfi við sveitarfélög Jóna Björk tekur við Garðheimum Segja son og tengdadóttur Reynis ekki koma nálægt Mannlífskaupum EastJet flýgur til Basel og Lyon Margrét áfram rektor á Bifröst Ingibjörg Þórdís til Elko Fimm mætt í Kauphöllina RÚV sker sér stærri sneið af auglýsingakökunni Ársverðbólga óbreytt á milli mánaða Tómar íbúðir á landinu nú um 10 þúsund Keppinautar eigi ekki að opna bækur sínar hver gagnvart öðrum Segir kaupverðið á Mannlífi ekki hátt Hætta í stjórn vegna yfirvofandi kaupa á Mannlífi Heimkaup undir hatt Samkaupa Leggja nýjan jarðstreng til Súðavíkur Heimildin að ganga frá kaupum á Mannlífi Lykilstjórnendur fá skell vegna tugmilljóna hagnaðar Segir eðlilegar skýringar á hæsta raforkuverðinu Efling hafi líklega sett Íslandsmet í óhróðri Bogi í Icelandair kaupir einbýlishús af Pétri í Eykt Fyrrverandi þingmenn vilja verða forstjórar Kríu Sjá meira