Bókunarþjónustan Thomas Cook mun hætta sölu á ferðum í sædýragarða þar sem finna má háhyrninga. Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu, sem birtist á heimasíðu þess í dag, segir að um 90% allra viðskiptavina Thomas Cook hafi áhyggjur af velferð dýranna.
Aðgerðir Thomas Cook beinast að tveimur sædýragörðum; annars vegar Seaworld á Flórída og hins vegar Loro Parque á Tenerife.
Haft er eftir framkvæmdastjóra fyrirtækisins að ákvörðunin hafi ekki verið auðveld. Þrátt fyrir að umræddir garðar hafi gripið til ýmissa aðgerða á síðustu misserum til að bæta vist háhyrninganna telji Thomas Cook það ekki duga til. Ferðarisinn hafi fundað með dýraverndunarsamtökum og sérfræðingum sem lýst hafi miklum áhyggjum af aðstæðum dýranna.
„Þar að auki bendir endurgjöf frá viðskiptavinum okkar til að um 90% þeirra telji mikilvægt að fyrirtækið hafi velferð dýra í fyrirúmi,“ segir í yfirlýsingunni. Í ljósi þessarar samstöðu hafi Thomas Cook ekki getað látið skoðanir viðskiptavinanna framhjá sér fara.
Seaworld hefur lýst því yfir að sædýragarðurinn muni ekki fá til sín fleiri háhyrninga í framtíðinni. Dýrin sem nú má finna í garðinum verði þar þó áfram - „þar sem viðskiptavinir okkar geta áfram heilsað upp á þau á næstu árum,“ eins og það er orðað í yfirlýsingu frá Seaworld. Garðurinn muni að sama skapi „halda áfram að bæta aðstæður“ dýranna.
Háhyrningahald hefur verið harðlega gagnrýnt á síðustu árum, ekki síst eftir útgáfu myndarinnar Blackfish sem frumsýnd var árið 2013. Þar var fylgst með raunum og vist háhyrningsins Tilikum í Seaworld, en hann drapst í fyrra.
Thomas Cook innleiddi nýja dýravelferðarstefnu á síðasta ári. Hún fól meðal annars í sér endurskoðun á því við hvaða dýragarða fyrirtækið verslaði. Endurskoðunin varð til þess að um 29 fyrirtæki lentu á svörtum lista Thomas Cook. Þeim er gert að bæta aðbúnað dýranna, vilji þau að ferðarisinn haldi áfram viðskiptum við garðana.
Bókunarrisi hættir viðskiptum við Seaworld

Tengdar fréttir

Seaworld stórtapar á kvikmyndinni Blackfish
Hlutabréf garðsins hafa fallið um 56 prósent frá frumsýningu heimildarmyndarinnar.

Harry Styles kennt um versnandi orðspor SeaWorld
Slæm umfjöllun um garðinn hófst þegar heimildarmyndin Blackfish var frumsýnd.

Framkvæmdastjóri SeaWorld segir af sér
SeaWorld hefur mistekist að lokka til sín gesti í kjölfar frumsýningar heimildarmyndarinnar Blackfish þar sem meðferð garðsins á háhyrningum er harðlega gagnrýnd.

Íslenski drápshvalurinn Tilikum dauður
Tilikum var stórstjarna í lifanda lífi eftir að kvikmyndin Blackfish fór sigurför um heiminn.