Eiður Smári einn af tímamótamarkamönnum Barcelona í Meistaradeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. maí 2019 10:30 Eiður Smári Guðpjohnsen og Lionel Messi á tíma Eiðs hjá Barcelona. Getty/Denis Doyle
Luis Suárez skoraði í gær fimm hundruðasta mark Barcelona í Meistaradeildinni þegar hann kom Barca í 1-0 í undanúrslitaleiknum á móti Liverpool. Luis Suárez hafði áður skorað fjögurhundruðasta mark Barcelona í Meistaradeildinni fyrir rétt rúmum fjórum árum. Það eru alls fjórir leikmenn Barcelona sem hafa náð að skora svona tímamótamark fyrir félagið í Meistaradeildinni og við Íslendingar könnumst mjög vel við einn. Eiður Smári Guðjohnsen skoraði nefnilega tvöhundruðasta mark Barcelona í Meistaradeildinni 31. október 2006 þegar hann skoraði á móti sínum gömlu félögum í Chelsea. Eiður er í úrvalshópi með þeim Rivaldo. Lionel Messi og Luis Suárez. Ekki slæmur klúbbur þar á ferðinni.GOLES “CENTENARIOS” DEL BARÇA EN CHAMPIONS LEAGUE: 100 Rivaldo (24.10.2000 al Leeds) 200 Gudjohnsen (31.10.2006 al Chelsea) 300 Messi (12.04.2011 al Shakhtar) 400 Luis Suárez (15.04.2015 al PSG) 500 Luis Suárez (01.05.2019 al Liverpool) — MisterChip (Alexis) (@2010MisterChip) May 1, 2019Eiður Smári skoraði alls 3 mörk í 20 leikjum með Barcelona í Meistaradeildinni og þá var hann áður búinn að skora 4 mörk í 25 leikjum með Chelsea í Meistaradeildinni. Eiður Smári var í liði Barcelona sem vann Meistaradeildina árið 2009 en hann náði ekki að skora í Meistaradeildinni þá leiktíð en lagði upp tvö mörk í fjórum leikjum. Eiður var síðan ónotaður varamaður í úrslitaleiknum á móti Manchester United.Another landmark Champions League goal for Barcelona. Levels pic.twitter.com/vypVcW5LRR — B/R Football (@brfootball) May 2, 2019
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Íslenski boltinn Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Bruno til bjargar Enski boltinn Damir á leið til Asíu Íslenski boltinn Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Fótbolti Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Enski boltinn „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Körfubolti Ísak hættur með ÍR Körfubolti Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Enski boltinn Fleiri fréttir Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Bruno til bjargar Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Kristófer áfram í Kópavogi Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni „Eitthvað sem maður mun muna eftir alla ævi“ Hlín fór á kostum og finnur fyrir áhuga: „Hef ekki tekið ákvörðun“ Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Elanga ekki í landsliðshóp Svía og neitar að svara þjálfaranum Nkunku til sölu þrátt fyrir að vera markahæstur Pogba við það að rifta samningi sínum við Juventus Nistelrooy yfirgefur Man United með tilkomu Amorim Fékk símtal frá Arteta en bætti Ödegaard í hópinn Í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að kýla dómara Myndband sýnir dómara urða yfir Liverpool og kalla Klopp kuntu Hlín og Guðrún báðar tilnefndar: „Það er engin eins og hún“ Heimir í vandræðum með flókinn þjóðsöng: „Ég mun ná þessu“ Sjá meira