Lífið

Faðir Beyonce með brjóstakrabbamein

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mathew Knowles er 67 ára.
Mathew Knowles er 67 ára.
Mathew Knowles, faðir þeirra Beyonce og Solange Knowles, greinir frá því í viðtali við Good Morning America að hann sé að berjast við brjóstakrabbamein.



Þessi 67 ára Bandaríkjamaður ræddi við Michael Strahan um málið og verður viðtalið sýnt á ABC innan skamms vestanhafs.

Brjóstakrabbamein hjá karlmönnum er sjaldgæft og kemur oftast upp hjá karlmönnum sem eru komnir yfir sextugt.

Í Bretlandi greindust 319 karlmenn með brjóstakrabbamein árið 2017 en 46.000 konur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.