Guttarnir í aðalhlutverki í sigri Arsenal í Frankfurt Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. september 2019 18:45 Saka skorar annað mark Arsenal. vísir/getty Arsenal gerði góða ferð til Þýskalands og vann 0-3 sigur á Eintracht Frankfurt í F-riðli Evrópudeildarinnar í kvöld. Bæði þessi lið náðu langt í Evrópudeildinni á síðasta tímabili. Arsenal komst alla leið í úrslit, þar sem liðið tapaði fyrir Chelsea, á meðan Frankfurt komst í undanúrslit. Leikurinn í Frankfurt í kvöld var afar fjörugur og færin fjölmörg. Joe Willock kom Arsenal yfir á 38. mínútu. Skot hans vinstra megin úr vítateignum fór af varnarmanni Frankfurt, í slána og inn. Frankfurt var manni færri síðustu ellefu mínúturnar eftir að Dominik Kohr fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt. Skömmu síðar skoraði hinn 18 ára Bukayo Saka annað mark Arsenal með góðu skoti fyrir utan vítateig. Þetta var fyrsta mark hans fyrir Arsenal. Saka var ekki hættur og tveimur mínútum fyrir leiksloka sendi hann á Pierre-Emerick Aubameyang sem skoraði sitt sjötta mark á tímabilinu. Lokatölur 0-3, Arsenal í vil. Evrópudeild UEFA
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti