Í tilkynningu á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi segir að líkið sé af erlendum ferðamanni og unnið sé að því að upplýsa aðstandendur hans um látið með aðstoð ræðismanns viðkomandi ríkis.
Af gögnum mannsins og ummerkjum að ráða virðist hann hafa verið einn á ferð og ekkert á vettvangi bendir til saknæms athæfis, að því er segir í tilkynningu lögreglunnar.
Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Suðurlandi og er gert ráð fyrir að krufning verði framkvæmd næstkomandi þriðjudag. Frekari upplýsingar verði ekki gefnar fyrr en staðfest hefur verið að aðstandendur hafi fengið upplýsingar um málið.