Skoðun

Lausnir fyrir gerendur

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Karlmaður var í vikunni dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir að níðast kynferðislega á syni sínum frá fjögurra til ellefu ára aldurs. Ofbeldið hefur haft víðtæk áhrif á drenginn, segir í dómi, og engan skal undra. Óhjákvæmilega hugsar fólk að dómurinn sé ekki í samhengi við óhugnanleg brotin.

Dómurinn er þó níðþungur sé miðað við aðra dóma sem fallið hafa í sambærilegum málum. Ef refsingin ætti að samræmast brotunum væri erfitt að réttlæta minna en hámarksrefsingu, sextán ár.

Rannsóknir sýna að 6 prósent íslenskra drengja og 18 prósent stúlkna verði fyrir kynferðisofbeldi fyrir 16 ára aldur. Afleiðingar níðingsverkanna eru þekktar. Grafalvarlegar.

En rannsóknir sem snúa að níðingunum sjálfum skortir. Þar liggur ef til vill meinið. Markmiðið, um leið og við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að hjálpa þolendum, hlýtur að vera að koma böndum á hvatirnar, sem að baki liggja, sé það gerlegt. Koma í veg fyrir voðaverkin.

Sú hugsun að þá sem brjóti á börnum megi læsa í fangelsi til eilífðar og henda lyklunum er skiljanleg. En hún er óraunsæ í réttarríki. Þrátt fyrir allt gerum við ráð fyrir, að jafnvel þeir sem drýgja ljótustu glæpi fái að takast á við lífið á ný eftir að hafa tekið út sinn dóm.

Þeir sem brjóta gegn börnum eru oft ólíkir öðrum brotamönnum, ef marka má sérfræðinga. Þeir eiga sjaldnast af brotasögu og fíknivandi í þeirra röðum er fátíður, öfugt við ýmsa aðra sem villast af braut réttvísinnar. Þeir eru sjaldnar með vanþroskatengd vandamál sem oft tengjast föngum. Margir fangar eru með ADHD, en þeir sem brjóta gegn börnum síður.

Í þeirra hópi er meira um persónuleikavandamál. Þeir eiga erfitt í hópi, teljast einfarar. Minni líkur eru á endurkomu þeirra í fangelsi en flestra annarra sem taka út refsivist. Fagmannleg meðferð getur þar skipt sköpum.

Víða er unnið markvisst að því að koma föngum út í samfélagið á ný. Opinberir aðilar, samtök og aðstandendur taka á móti kynferðisafbrotamönnum eftir fangavist og reyna að hnýta net í kringum þá. Þeir fá stuðning enda þrautin þyngri að horfast í augu við umheiminn með þann ömurlega stimpil að vera barnaníðingur. Brýnt er að þeir upplifi sig sem hluta af heildinni. Útskúfun eykur nefnilega líkur á frekari brotum.

Samfélagið hefur, skiljanlega, ríka tilhneigingu til að ýta barnaníðingum út í horn. Sú aðferð er ekki vænleg. Á vandanum þarf að taka. Brotamennirnir þurfa aðstoð, hvort sem okkur líkar betur eða verr.

Kallað er eftir lausnum fyrir gerendur þeirrar tegundar ofbeldis sem dregur hvað stærstan dilk á eftir sér fyrir þá sem fyrir því verða.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×