Afskornir túlípanar eru ófáanlegir á Íslandi þessa dagana. Það þarf þó ekki að koma að öllu leyti á óvart því innlendir framleiðendur geta bara boðið upp á þessi vinsælu blóm frá desembermánuði til páska. Þessu vilja blómaheildsalar breyta og vilja ólmir f lytja inn túlípana þaðan sem framboðið er nægt allt árið um kring. Það sem hamlar þó innflutningi eru gríðarlega háir tollar á vöruna.
Félag atvinnurekenda hefur sent ráðgjafarnefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara erindi þar sem farið er fram á að hinir háu tollar verði felldir niður.
„Tollurinn er gríðarlega hár. Verðtollur er 30 prósent og auk þess er 95 króna stykkjatollur á hvert blóm. Tíu túlípana búnt, sem kostar 600 krónur í innkaupum, fær því á sig 1.130 krónur í toll, þannig að innkaupsverðið hartnær þrefaldast. Þessi skattlagning er að mati FA ekki forsvaranleg gagnvart neytendum,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri samtakanna.
Blómasalar eru á því að talsverð eftirspurn sé eftir túlípönum allt árið um kring en þó virðist ekki einhugur um hvort þörf sé á innflutningi.
„Mér finnst bara hið besta mál að sum blóm séu bara fáanleg yfir eitthvað tímabil. Það er nóg af öðrum fallegum blómum til,“ segir Sigríður Gunnarsdóttir, blómasali í 18 rauðum rósum í Kópavogi.
Vilja vinna bug á túlípanaskorti
Björn Þorfinnsson skrifar

Mest lesið

Icelandair skrúfar fyrir fría gosið
Viðskipti innlent

Ánægjulegt að breið sátt liggi fyrir um uppgjör vegna ÍL-sjóðs
Viðskipti innlent


Enginn sjái eftir því á dánarbeðinum að hafa ekki unnið meira
Viðskipti innlent



Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri
Viðskipti innlent

Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga
Viðskipti innlent

Hækkar tolla á Kína aftur í 145 prósent
Viðskipti erlent

Milljarðaafgangur og besta niðurstaðan í sautján ár
Viðskipti innlent