Alli: „Gátum ekki spilað verr“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 26. nóvember 2019 22:31 Harry Kane kann að skora mörk vísir/getty
Harry Kane varð í kvöld fljótasti leikmaðurinn í sögunni til þess að skora 20 mörk í Meistaradeild Evrópu. Kane skoraði tvö mörk í endurkomu Tottenham gegn Olympiacos í kvöld og er því kominn með 20 Meistaradeildarmörk. Það tók hann aðeins 24 leiki að skora þau, og bætti hann því met Alessandro del Piero sem skoraði sín 20 mörk í 26 leikjum. Tottenham vann leikinn 4-2 eftir að hafa lent 2-0 undir. „Byrjunin var vonbrigði, við vitum það, og við komum ekki inn í leikinn með þá orku sem þurfti,“ sagði Kane eftir leikinn. „Þeir náðu tveimur mörkum og settu pressu á okkur, en við náðum mörkunum og það er gott að við náðum að tryggja okkur áfram.“ Spurður út í metið sagði Kane: „Þetta er ekki slæmur leikmaður til þess að taka met af. En þetta snérist um að komast áfram og við gerðum það.“ Dele Alli kom endurkomu Tottenham af stað með marki undir lok fyrri hálfleiks. Hann var líkt og Kane ekki sáttur með byrjunina hjá Tottenham. „Við byrjuðum alls ekki nógu vel og sögðum í hálfleik að við gætum í raun ekki hafa spilað verr,“ sagði Alli. „En það er á vissan hátt ágætt því þá gátum við ekki annað en gert betur.“
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Glódísar-æði hefur gripið um sig: „Ég kom til að horfa á Glódísi“ Fótbolti Skip Bayless kærður fyrir kynferðislega áreitni Sport „Get skilið að þetta komi mörgum spánskt fyrir sjónir“ Handbolti Vill fá útlending eða Rúnar Kristins sem næsta landsliðsþjálfara Fótbolti Gerrard að verða afi Fótbolti Fékk að halda áfram að spila þrátt fyrir að hafa fengið rautt Fótbolti Anna Kamilla fyrsta snjóbrettakonan frá upphafi Sport Segir Trent frekar eiga heima í Tranmere en Real Madríd Enski boltinn Alfreð Gísla: „Hljómar kannski hrokafullt en svona er þetta“ Handbolti Littler fær að sýna bikarinn á Old Trafford Enski boltinn Fleiri fréttir Guardiola vill fá þrennu-Grealish aftur Littler fær að sýna bikarinn á Old Trafford Fékk að halda áfram að spila þrátt fyrir að hafa fengið rautt Gerrard að verða afi Segir Trent frekar eiga heima í Tranmere en Real Madríd Glódísar-æði hefur gripið um sig: „Ég kom til að horfa á Glódísi“ Vill fá útlending eða Rúnar Kristins sem næsta landsliðsþjálfara „Ef við gerum það ekki allar stundir munum við tapa leikjum“ „Verðum að halda áfram og við munum gera það“ „Ef við getum þetta á Anfield þá getum við þetta alls staðar“ Damir ekki lengi að opna markareikninginn í Asíu Orri áfram í bikarnum en af velli í hálfleik Þrjú víti og Ipswich áfram í fallsæti Jafntefli niðurstaðan í einum af leikjum ársins Amorim segir leikmenn sína hrædda Fá 21 árs Tékka í miðri markvarðakrísu Stórleikurinn fer fram þrátt fyrir snjóinn Telur sig hafa fengið hálfgert loforð frá ÍSÍ um fjármuni „Við stýrðum leiknum ekki nægilega vel“ Pep neitar því að sínir menn séu komnir á beinu brautina Willum Þór skoraði þegar Birmingham tyllti sér á toppinn Arsenal mistókst að setja aukna pressu á Liverpool Albert ekki með þegar Fiorentina steinlá gegn Napoli Skrípamark en Mikael og félagar fengu bara stig „Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis Slæmt gengi gestanna heldur áfram Meistararnir unnu annan leikinn í röð Isak með Newcastle áfram á miklu flugi Olmo og Victor í algjörri óvissu eftir að beiðni Barcelona var hafnað Valdi ekki Salah í lið ársins hingað til Sjá meira