Bað um nektarmyndir í skiptum fyrir myndatöku: „Verð að sjá hvort þú sért þess virði“ Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 24. júlí 2019 13:28 Ariana Grande og Kim Kardashian hafa tekið afstöðu með þeim konum sem stíga fram með ásakanir á hendur Marcus Hyde, ljósmyndara sem þær hafa unnið náið með undanfarin ár. Vísir/Getty samsett mynd
Framferði stjörnuljósmyndarans Marcus Hyde er raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian West og söngkonunni Ariönu Grande mikið reiðarslag. Fréttir af ósæmilegri framgöngu Hydes gagnvart ungum fyrirsætum tók að spyrjast út á sunnudag en bæði Kardashian og Grande hafa unnið náið með ljósmyndaranum undanfarin ár. Bandaríska fyrirsætan Sunnaya Nash hefur lengi verið mikill aðdáandi stjörnuljósmyndarans Hyde. Þegar hún síðan tók eftir því að Hyde væri að auglýsa eftir fyrirsætum ákvað hún að grípa tækifærið og senda honum skilaboð til að fá nánari upplýsingar um mögulega myndatöku. Hyde svaraði henni strax til og bað hana um að senda nektarmyndir af sér. Þegar hún sagðist ekki treysta sér til þess mútaði hann henni til að senda sér nektarmyndir. Ef hún myndi verða við óskum hans honum fengi hún myndatöku án endurgjalds. Nash sagðist ekki vilja senda honum neinar nektarmyndir en hafði þó enn áhuga á að sitja fyrir hjá honum því hún er mikill aðdáandi hans. Hyde sagðist þurfa að fá nektarmyndir fyrir myndatökuna til þess að ganga úr skugga um að hún „væri þess virði“. Ef hún fengist ekki til þess að senda sér nektarmyndir þá þyrfti hún að greiða rúmlega 250 þúsund íslenskar krónur fyrir myndatökuna. Þegar Nash sagðist ekki hafa áhuga á að senda nektarmynd í skiptum fyrir ókeypis myndatöku sagði Hyde: „Finndu þá einhvern annan og ég held áfram að ljósmynda frægt fólk“. View this post on Instagram Gross @marcushyde . @kimkardashian @arianagrande , come get your boy and teach him some decency. Last night, Los Angeles model and interior design student @sunnnaya replied to the celebrity photographer’s Instagram story seeking models for a shoot. What transpired in their DM was nothing short of the typical predatory douchebaggery you’d expect via shady Instagram “castings” by slimy dudes. With her followers backing her up and sharing her post, Hyde had a simple reply: “suck a fat big dick”. That’s sure to get you points with the ladies, Marcus. • #marcushyde #kimkardashian #kendalljenner #khloekardashian #arianagrande #photographer #celebrity #casting #model #shady #gross #kuwtk #wiwt #ootd #film #digital #camera #celeb #behindthescenes #dietprada A post shared by Diet Prada ™ (@diet_prada) on Jul 22, 2019 at 8:25am PDT Fyrirsætur stíga fram og saka Hyde um ósæmilega hegðun Nash blöskraði framferði ljósmyndarans, tók skjáskot af samskiptum þeirra og birti á Instagram-reikningnum sínum. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og innan skamms opnuðust flóðgáttir frásagna ungra og óreyndra fyrirsæta sem sökuðu Hyde um ósæmilega hegðun. Margar sögðust hafa lent í því sama og Nash. Kim Kardashian fyrir áfalli að heyra sögurnar Í gærkvöldi steig raunveruleikastjarnan Kim Kardashian West fram til varnar konunum og lýsti yfir djúpstæðum vonbrigðum með Hyde. Hún hefði fengið áfall að heyra fréttirnar og væri afar sorgmædd vegna málsins. Hyde hefur hingað til verið góður vinur þeirra hjóna og jafnvel tekið ljósmyndir af Kardashian fjölskyldunni. „Ég hef lesið í gegnum öll skilaboðin og allar frásagnir kvenna af ósæmilegri og óafsakanlegri hegðun ljósmyndara sem ég hef unnið mikið með. Mín reynsla af því að vinna með honum hefur alltaf verið fagleg og ég varð fyrir áfalli og vonbrigðum og varð sorgmædd þegar ég komst að því að aðrar konur hafa allt aðra reynslu en ég. Ég styð heilshugar rétt kvenna til að til að verða ekki fyrir áreitni og að vera ekki ýtt út í að gera eitthvað sem þeim líður ekki vel með. Við getum ekki leyft svona hegðun að viðgangast átölulaust og ég fagna þeim sem stíga fram.“ View this post on Instagram Going through my pics and found this @marcushyde A post shared by Kim Kardashian West (@kimkardashian) on Jun 26, 2019 at 10:43pm PDT Grande tekur afstöðu gegn Hyde Söngkonan Ariana Grande tók einnig afstöðu með konunum sem hafa stigið fram og greint frá reynslu sinni. „Ég las rétt í þessu nokkrar hneykslanlegar og átakanlegar sögur,“ skrifaði Grande á Instagram-síðu sína á mánudag. Hún bað fylgjendur sína um að gæta sín og að setja mörk. Grande sagðist vera miður sín að heyra af því að ljósmyndarinn hefði mútað ungu fyrirsætunni en sagðist lofa að í faginu starfi ótal margir góðir og hæfileikaríkir ljósmyndarar sem séu vandir að virðingu sinni. Hyde brást ókvæða við afhjúpun Nash og sendi henni einkaskilaboð: „Sjúgðu stóran feitan lók“ Síðan þá hefur hann varist allra frétta og eytt Instagram-reikningnum sínum.
Hollywood MeToo Bandaríkin Ljósmyndun Mest lesið Sviptir hulunni af þrettánda barni Musks Lífið Baltasar, Sunneva og Kilja litla njóta lífsins Lífið Tom Cruise og Ana de Armas sögð stinga saman nefjum Lífið Þau komust áfram í úrslit Söngvakeppninar Lífið Krakkatían: Eurovision, Góa og Gettu betur Lífið Þórdís Björk selur höllina á Arnarnesi Lífið Dúbaí-súkkulaðið umtalaða: „Þetta er galin sala“ Lífið Móðirin ósátt við veru sonarins í Hvíta húsinu Lífið „Við höfum það fyrir sið að faðmast í að lágmarki sjö sekúndur á hverjum morgni“ Lífið samstarf Barnaníðsmáli Jay-Z vísað frá Lífið Fleiri fréttir Tom Cruise og Ana de Armas sögð stinga saman nefjum Sviptir hulunni af þrettánda barni Musks Krakkatían: Eurovision, Góa og Gettu betur Þau komust áfram í úrslit Söngvakeppninar Baltasar, Sunneva og Kilja litla njóta lífsins Barnaníðsmáli Jay-Z vísað frá Fréttatía vikunnar: Mismæli, sakborningar og Elon Musk Dúbaí-súkkulaðið umtalaða: „Þetta er galin sala“ Bitist um miða á ball vinstri sinnaðs ábreiðubands Þórdís Björk selur höllina á Arnarnesi „Sorgleg þróun“ Líf og fjör í teiti 66°Norður í Kaupmannahöfn „Fann það á mér að það væri of mikil fórn“ Kanye og Censori séu við það að skilja Öðruvísi hugmyndir fyrir Valentínusardaginn Blár hvalur í kveðjugjöf „Geta tveir einstaklingar með svona ólíka lífssýn átt í hjónabandi?“ Russell Brand stefnt vegna kynferðislegrar áreitni Eyþór Wöhler hefur fundið ástina Björn Hlynur og Rakel slettu úr klaufunum Breytti lúxusíbúð frá 1985 í Efstaleitinu í risastóra lúxussvítu Von Trier lagður inn á hjúkrunarheimili Eldri borgarar á hraðstefnumóti í Bíó paradís Íslensku kryddpíurnar en hver er hvað? Móðirin ósátt við veru sonarins í Hvíta húsinu Öryrki um þrítugt vegna verkja en lyfjalaus í dag Draumurinn rættist en honum fylgdi skömm Taldi sig hólpna því síminn hringdi aldrei Tilhugsun um kynlíf á ný óbærileg Forsetahjónin mættu á frumsýningu Sigurvilja Sjá meira