United upp í 4. sætið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. mars 2019 16:45 Rashford fagnar marki sínu. vísir/getty Manchester United lyfti sér upp í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 2-1 sigri á Watford á Old Trafford í dag. Þetta var fyrsti leikur United eftir að Ole Gunnar Solskjær var ráðinn knattspyrnustjóri liðsins til frambúðar. Marcus Rashford kom United yfir á 28. mínútu eftir undirbúning Luke Shaw. Markið kom gegn gangi leiksins en Watford byrjaði af miklum krafti og þjarmaði að heimamönnum. Watford sótti áfram í seinni hálfleiks en United komst í 2-0 á 72. mínútu þegar Anthony Martial skoraði eftir barning í vítateignum. Abdoulaye Doucouré minnkaði muninn á lokamínútu leiksins en nær komust gestirnir ekki. Lokatölur 2-1, United í vil. Þetta var þriðja tap Watford í síðustu fjórum leikjum. Liðið er í 9. sæti deildarinnar. Enski boltinn
Dagskráin í dag: Meistarakeppni KKÍ, 50 milljón króna leikurinn og stórleikir í Bestu kvenna Sport
Dagskráin í dag: Meistarakeppni KKÍ, 50 milljón króna leikurinn og stórleikir í Bestu kvenna Sport