Þriðji sigur Leeds í röð | Jón Daði kom ekkert við sögu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. ágúst 2019 16:00 Alioski skoraði annað mark Leeds gegn Stoke. vísir/getty Leeds United vann sinn þriðja sigur í röð þegar liðið lagði Stoke City að velli, 0-3, í ensku B-deildinni í dag. Stuart Dallas, Egzijan Alioski og Patrick Bamford skoruðu mörk gestanna sem eru með 13 stig á toppi deildarinnar, tveimur stigum meira en nýliðar Charlton Athletic sem unnu Brentford, 1-0. Patrik Sigurður Gunnarsson var ekki í leikmannahópi Brentford. Jón Daði Böðvarsson sat allan tímann á varamannabekknum þegar Millwall gerði 1-1 jafntefli við Middlesbrough á Riverside-vellinum. Millwall er í 10. sæti deildarinnar með átta stig. Luton Town vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu þegar liðið lagði Barnsley að velli, 1-3, í nýliðaslag. Derby County og West Brom skildu jöfn, 1-1, í hádegisleiknum. Bæði lið hafa gert þrjú jafntefli í síðustu fjórum leikjum sínum. Huddersfield Town tapaði þriðja leik sínum í röð þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Reading á heimavelli, 0-2. Enski boltinn