Brunavarnir Rangárvallasýslu og aðrir viðbraðsaðilar fengu tilkynningu skömmu eftir klukkan 20:30 í kvöld um að flugvél hefði brotlent norðan við flugvöllinn. Í tilkynningu frá lögreglu á Suðurlandi segir að eldur hafi verið laus í vélinni.
Fimm um borð í vélinni
„Alls voru fimm aðilar í flugvélinni og eru allir alvarlega slasaðir. Rannsóknardeild Lögreglustjórans á Suðurlandi fer með rannsókn málsins og nýtur aðstoðar Rannsóknarnefndar samgönguslysa og tæknideildar Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu.Jafnframt hefur viðbragsteymi Rauða kross Íslands verið sent á vettvang til að veita vitnum að atvikinu sálrænan stuðning.
Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu,“ segir í tilkynningunni.

Lentu í Reykjavík um klukkan 22
Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru sendar á vettvang - þær TF-EIR og TF-LÍF. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að slasaðir hafi verið fluttir í þyrlum og þær lent við Landspítalann í Fossvogi um klukkan 22.Fréttin hefur verið uppfærð.