Í lok síðasta árs gaf jaðarútgáfan FALK út fyrstu plötu Skaða í fullri lengd, Jammið. Tónlistin er óskammfeilin raftónlistarsamsuða uppfull af kynusla, en Skaði flokkar hana sem „glittercore“.
Nýlega var Skaði svo með atriði í Söngvakeppninni ásamt Ella Grill og Glym, en þau fluttu lagið Jeijó, keyrum alla leið.
Á bak við listann er „ekkert þema, þannig séð,“ að sögn Skaða en listinn fer eins og áður segir um víðan völl. Það sem bindur hann kannski saman er að hann virðist nokkuð hástemmdur. Hávær og stoltur af því.
„Ég er á leiðinni í stutt tónleikaferðalag um Amsterdam og Berlín og svo er ég á fullu að semja nýtt efni sem kemur út í sumar,“ segir Skaði aðspurð að því hvað sé næst á dagskrá.