Nýjustu systur Heimaeyjar byrja í fjögurra vikna einangrun Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. júní 2019 09:45 1600 tonna laugin í Vestmannaeyjum þar sem mjaldrarnir verða í sóttkví í fjórar vikur. Vísir/Sighvatur
Mjaldrarnir tveir frá Kína eru væntanlegir síðar í dag á Keflavíkurflugvöll. Áætlað er að flugvélin sem flytur mjaldrana tvo, sem eru systur, lendi á Keflavíkurflugvelli klukkan 14. Matvælastofnun fylgist með velferð hvalanna og smitvörnum við flutning þeirra í ný heimkynni í Vestmannaeyjum. Mjaldrarnir sem nefnast Litla grá og Litla hvít eiga að baki langt ferðalag frá dýragarðinum Shang Feng Ocean World í Shanghai. Sérútbúnir flutningabílar munu ferja þá frá flugvellinum um Landeyjahöfn til Vestmannaeyja. Í Eyjum verða hvalirnir settir í einangrun í sérsmíðaðri landlaug þar sem þeir munu dvelja í a.m.k. 4 vikur. Þegar aðlögun þeirra er lokið verða þeir fluttir á afgirtan griðastað í Klettsvík. Hvalirnir voru fangaðir við Rússland fyrir um 10 árum síðan og fluttir í dýragarðinn í Kína en í Vestmannaeyjum munu þeir búa við betri aðstæður sem eru mun líkari náttúrulegum heimkynnum þeirra. Rúm þrjú ár eru síðan erindi vegna þessa innflutnings barst Matvælastofnun. Á þeim tíma hafa skilyrði til innflutnings verið mótuð m.t.t. heilbrigðis og velferðar dýranna annars vegar og smithættu hins vegar. Var þetta gert í samráði við innlenda og erlenda sérfræðinga. Innflutningsskilyrði miða m.a. að því að lágmarka smithættu sem fylgir hvölunum og á undanförnum vikum hafa þeir undirgengist ítarlegar sýnatökur, læknisskoðanir auk meðhöndlunar gegn sníkjudýrum. Nú tekur við einangrun þar sem fylgst verður með heilsufari þeirra og atferli með það að markmiði að aðlögun þeirra að nýjum heimkynnum verði fyrst og fremst á forsendum bættrar velferðar.Mjaldrarnir fljúga nú til landsins.Vísir/HJALTIFá griðarstað í Klettsvík „Við erum tilbúin og spennt að taka á móti mjöldrunum. Við munum reyna að keyra þetta áfram eins hratt og vel og hægt er. Það verður mikil vinna þegar þeir lenda á Keflavíkurflugvelli. Mjaldrarnir ferðast í sérútbúnum tönkum sem þeir fóru í í dýragarðinum í Shanghæ. Þeir eru fluttir úr flugvélinni í tvo sérútbúna vagna á Keflavíkurflugvelli sem munu flytja þá til Ladneyjarhafnar. Hvor mjaldur fyrir sig er um eitt tonn að þyngd. Heildarþyngd á hvorum tank er um 9 tonn. Það verður að skipta um vatn í báðum tönkunum þar sem um eitt til tvö tonn af vatni eru tekin úr þeim og nýtt vatn sett í þá. Mjaldarnir eru í sóttkví og bílarnir fara síðan í sóttkví líka um leið og þeir fara inn í vagnanna,“ segir Sigurjón Ingi Sigurðsson, verkefnastjóri sérverkefnadeildar TVG-Zimsen sem sér um flutninginn á mjöldrunum á Íslandi. „Við ökum með mjaldrana Suðurstrandarveginn. Við erum með fjögur öryggisstopp á leiðinni þar sem verður stoppað og farið inn og kíkt á mjaldranna. Fyrsta stopp er í Grindavík, annað stopp á Selfossi og við erum síðan með tvo aðra staði sem verður stoppað á ef á þarf að halda á leið til Landeyjarhafnar,“ segir Sigurjón. Mjaldrarnir verða síðan fluttir um borð í Herjólf sem siglir með þá til Vestmannaeyja. Mjaldrarnir verða fyrst um sinn í sóttkví í stórri laug áður en þær fara í Klettsvíkina sem verður þeirra griðastaður. Vel verðum fylgst með mjöldrunum um borð í vögnunum á leið til Vestmannaeyja. „Þjálfarar mjaldranna geta verið í talstöðvarsambandi við þá í vögnunum. Það er sérstakt talstöðvar- og myndavélarkerfi í tönkunum og þjálfararnir sitja frammí trykkunum hjá bílstjórununum og fylgjast vel með mjöldrunum. Þetta verður krefjandi en mjög skemmtilegt verkefni og við hlökkum til að taka á móti þeim,“ segir Sigurjón.Rætt var við Sigurjón í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær. Spjallið má heyra að neðan.
Mjaldrar í Eyjum Vestmannaeyjar Tengdar fréttir Mjaldrarnir lagðir af stað til Íslands Mjaldrasysturnar Litla-Grá og Litla-Hvít eru lagðar af stað til Íslands flugleiðina frá Kína. 19. júní 2019 06:50 Mjaldrasysturnar fá endanlegan lendingardag Mjaldrasysturnar Litla-Grá og Litla-Hvít, sem flytja á frá Kína í hvalaathvarf samtakanna Sea life trust við Vestmannaeyjar, munu koma hingað til lands 19. júní. 7. maí 2019 15:09 Mest lesið Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki Erlent „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Erlent Ferðamaður sofnaði undir stýri og ók á rútu Innlent Hrædd um að hún mæti óvart í gömlu vinnuna í fyrramálið Innlent Hundsbitum fari fjölgandi Innlent Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám Erlent Skúffukaka og mjólk vegna pirrings út af töppum Innlent Óður hundur réðst á tvo í Grafarvogi Innlent Hjólhýsi fauk af veginum í Borgarfirði Innlent „Fólk er einfaldlega hrætt“ Erlent Fleiri fréttir Hrædd um að hún mæti óvart í gömlu vinnuna í fyrramálið Hundsbitum fari fjölgandi Skúffukaka og mjólk vegna pirrings út af töppum Viðbrögð við sögulegum tölum í Frakklandi í beinni Ferðamaður sofnaði undir stýri og ók á rútu Hjólhýsi fauk af veginum í Borgarfirði Séra Arna Ýrr tekur við af verðandi biskupi Grafarvogsbúar þurfi ekki að óttast blokkir Óður hundur réðst á tvo í Grafarvogi Tónlistarveisla framundan í Skálholti Fórna sumarfríinu til að hjálpa fólki á hálendinu Öflugur skjálfti í Bárðarbungu Kosningar, uppbygging í Grafarvogi og hálendisvakt „Ég mun ekki taka þátt í prófkjöri aftur“ Tekinn próflaus á 120 kílómetra hraða Samsæriskenningar, borgarstjóri um húsnæðismál og kosningar Stungumaðurinn á hlaupahjólinu áfram í haldi Fleiri foreldrar í vanda með máluppeldi en áður Riðu um miðbæinn til að fagna Landsmóti Ómögulegt að vita hvað leynist í „brúnku-nefspreyjum“ sem seld eru á samfélagsmiðlum 82 ára snillingur í Hafnarfirði í hannyrðum „Hann á að vera hér á Íslandi“ Myndir frá eldsvoðanum í Húsafelli í nótt Alvarlegar aukaverkanir af brúnkunefspreyjum og brottvísun Yazans Tamimi Rændi fötum fyrir nánast hundrað þúsund Hugsi yfir lausagöngu fjár við vegi eftir að ferðamaður ók á lamb Séra Aldís Rut ráðin prestur við Grafarvogskirkjuprestakall Parísarhjólið varla óvinsælt ef sextíu þúsund vilja taka snúning Rabarabarahátíð í gamla bænum á Blönduósi Býst ekki við nýju eldgosi Sjá meira
Mjaldrarnir lagðir af stað til Íslands Mjaldrasysturnar Litla-Grá og Litla-Hvít eru lagðar af stað til Íslands flugleiðina frá Kína. 19. júní 2019 06:50
Mjaldrasysturnar fá endanlegan lendingardag Mjaldrasysturnar Litla-Grá og Litla-Hvít, sem flytja á frá Kína í hvalaathvarf samtakanna Sea life trust við Vestmannaeyjar, munu koma hingað til lands 19. júní. 7. maí 2019 15:09