Innlent

Atvinnuleysi jókst um 1,3 prósentustig á milli mánaða

Samúel Karl Ólason skrifar
Á síðustu sex mánuðum lækkaði atvinnuþátttaka um 1,4 prósentustig og hlutfall starfandi um 1,7 prósentustig. Atvinnuleysi jókst um 0,3 prósent.
Á síðustu sex mánuðum lækkaði atvinnuþátttaka um 1,4 prósentustig og hlutfall starfandi um 1,7 prósentustig. Atvinnuleysi jókst um 0,3 prósent. Vísir/Vilhelm
Hagstofa Íslands segir 8.500 manns hafa verið atvinnulausa í ágúst síðastliðnum. Það samsvarar 4,4 prósentum og er það 1,3 prósentustigum hærra en í júlí, samkvæmt árstíðarleiðréttum tölum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Atvinnuþátttaka var 80 prósent sem er um 1,2 prósentustigum lægra en í júlí.

Árstíðarleiðrétt hlutfall starfandi fólks var 76,9 prósent í ágúst og er það, samkvæmt tilkynningu frá Hagstofunni, með því lægsta sem hlutfallið hefur mælst síðasta hálfa árið.



Á síðustu sex mánuðum lækkaði atvinnuþátttaka um 1,4 prósentustig og hlutfall starfandi um 1,7 prósentustig. Atvinnuleysi jókst um 0,3 prósent.

Samanburður óleiðréttra mælinga fyrir ágúst 2018 og 2019 sýnir að vinnuaflið dróst saman um 2.400 manns og að hlutfall þess af mannfjölda dróst saman um tæp 3 prósentustig. Starfandi fólki fækkaði um 5.800 og hlutfall þess var rúmlega 4 prósentustigum lægra en það var á sama tíma árið 2018.

Samkvæmt óleiðréttum mælingum voru atvinnulausir í ágúst 2019 um 3.500 manns fleiri en á sama tíma árið 2018 þegar þeir voru 5.100. Þá sýna óleiðréttar mælingar töluverða hækkun á hlutfalli atvinnulausra milli ára, eða um 1,7 prósentustig. Einnig eru mun fleiri áætlaðir utan vinnumarkaðar í ágúst 2019, eða um 52.600, samanborið við 44.100 í ágúst árið á undan.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×