Tap hjá Leeds │Sjötti sigurinn í röð hjá Villa Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 6. apríl 2019 16:16 Che Adams skoraði sigurmark Birmingham vísir/getty Leeds United er dottið niður í umspilssæti í ensku B-deildinni í fótbolta eftir tap fyrir Birmingham í dag. Aston Villa vann sjötta leikinn í röð. Leeds og Sheffield United berjast hart um annað sæti ensku B-deildarinnar en Norwich virðist ætla að taka toppsætið nokkuð örugglega. Norwich vann QPR 4-0 í dag og er með 84 stig eftir 40 leiki af 46. Sheffield United tók annað sætið af Leeds í dag þegar liðið vann Preston á útivelli 1-0 á sama tíma og Leeds tapaði fyrir Birmingham. Birmingham hafði tapað síðustu fimm leikjum þegar Leeds mætti í heimsókn. Heimamenn voru miklu minna með boltann í leiknum en það kom ekki að sök því þeir náðu að koma boltanum í netið, annað heldur en gulir gestirnir. Che Adams skoraði eina mark leiksins með góðu skoti á 29. mínútu, stuttu eftir að Patrick Bamford skaut í stöngina fyrir Leeds. Leeds náði aðeins einu skoti af níu á markið í leiknum á meðan Birmingham setti sjö af tíu skotum sínum á markið. Þetta tap gæti reynst Leeds dýrkeypt, en Birmingham er enn ekki sloppið alveg frá fallbaráttunni. Reading er einnig í miðri fallbaráttunni, í síðasta örugga sætinu með 40 stig, stigi meira en Rotherham. Reading byrjaði vel á útivelli gegn Hull þegar Lewis Baker skoraði með skoti fyrir utan teig eftir rétt korters leik. Kamil Grosicki jafnaði leikinn fyrir heimamenn og Marc Pugh kom þeim yfir í seinni hálfleik. Grosicki tryggði svo 3-1 sigurinn. Aston Villa vann sjötta leikinn í röð með dramatískum útisigri á Sheffield Wednesday. Þetta var fyrsta tap Wednesday síðan Steve Bruce tók við liðinu. Það var allt jafnt, 1-1, þegar komið var inn í uppbótartíma seinni hálfleiks en þá settu Albert Adomah og Tammy Abraham sitt hvort markið og tryggðu Villa 3-1 sigur. Birkir Bjarnason var ekki í leikmannahópi Aston Villa og Jón Daði Böðvarsson er enn frá í liði Reading en hann hefur verið að glíma við meiðsli.Úrslit dagsins: Norwich - QPR 4-0 Birmingham - Leeds 1-0 Blackburn - Stoke 0-1 Bolton - Ipswich 1-2 Brentford - Derby 3-3 Bristol City - Wigan 2-2 Hull - Reading 3-1 Millwall - West Brom 2-0 Preston - Sheffield United 0-1 Rotherham - Nottingham Forest 2-1 Sheffield Wednesday - Aston Villa 1-3 Swansea - Middlesbrough 3-1 Enski boltinn