City í bikarúrslit

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gabriel Jesus skorar eina mark leiksins.
Gabriel Jesus skorar eina mark leiksins. vísir/getty
Manchester City er komið í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar eftir 1-0 sigur á Brighton á Wembley í dag.

Gabriel Jesus skoraði eina mark leiksins á 4. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf Kevins De Bruyne. City-menn voru mun sterkari í leiknum en létu eitt mark duga.

Þetta er í fyrsta sinn síðan 2013 sem City kemst í bikarúrslit. 

City hefur fimm sinnum orðið bikarmeistari, síðast 2011.

Í úrslitaleiknum, sem fer fram 18. maí, mætir City annað hvort Watford eða Wolves.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira