„Við höfum báðir verið að fást við ýmist myndlist eða grafík en leiðir okkar lágu saman fyrst árið 2016,“ segir Viktor.

Mamma Þórðar er mikill aðdáandi minn,“ segir Viktor og bætir við að þeir séu ákaflega gott teymi enda sé hann, Viktor, listamaður en Þórður er forritari og þeir með sameiginlegan listáhuga.
„Okkur fannst þetta bara meika sens, að geta keypt prentverk í tölvunni heima hjá sér í rólegheitum. Geta skoðað úrvalið, kynnt sér listamennina og gefið sér svo góðan tíma til að velja vel.
Þegar þessi hugmynd kom upp hjá okkur lá það beinast við að við myndum bara láta verða af þessu sjálfir af ofantöldum ástæðum og það hjálpar líka helling að saman erum við með gott tengslanet bæði í grafík- og myndlistarheiminum hérna heima.“

Við sitjum líka beggja vegna borðsins,“ bætir Þórður við. „Við erum báðir með verk á síðunni og ég keypti næstum allar jólagjafirnar mínar þar líka.
Það skiptir okkur miklu máli að gæta þess að allir fái eitthvað fyrir sinn snúð. Listamenn geti komið sér og sínu á framfæri, gestir síðunnar hafi aukið aðgengi að „current“ íslenskri list og við strákarnir höfum eitthvað að gera í frítíma okkar.“
Postprent gengur út á að búa til vettvang fyrir listamenn, sem vinna í hvers kyns prentmiðlum, til að koma list sinni á framfæri á netinu. Um er að ræða vefsvæði þar sem sérvalinn hópur listamanna er með prentverk sín til sölu í takmörkuðu upplagi.


„Það er greinilega áhugi fyrir þessu framtaki sem er auðvitað gott að fá staðfestingu á. Við héldum svo opnunarpartý/jólamarkað í Bíói Paradís þar sem listamenn á síðunni komu og seldu verkin sín.“
Þeir segjast ákaflega spenntir fyrir komandi ári þar sem þeir munu ráðast í að breiða út boðskap síðunnar.
„Við erum báðir gífurlega stoltir af þessu verkefni og finnst þetta þörf og góð viðbót við listaflóru landsins. Draumurinn er að Postprent virki sem aukin innspýting í íslenskt listalíf, hvetji fólk til góðra verka og gefi öðrum tækifæri til að fylgjast með og njóta afrakstursins.“