Maríulax Arons var yfir 20 pund Jakob Bjarnar skrifar 27. júní 2019 14:34 Aron með 20 punda lax sem hann setti í nú í morgun í Laxá í Aðaldal, Nessvæðinu. Um er að ræða maríulaxinn sjálfan.
Sá fáheyrði atburður gerðist við Laxá í Aðaldal, nánar tiltekið því sögufræga Nessvæði, að Aron Pálmarsson einn helsti handknattleikskappi sem komið hefur fram á Íslandi fékk maríulax sinn þar og var sá lax yfir tuttugu pund. Þetta þýðir að Aron er þar með og umsvifalaust kominn í hinn eftirsótta 20 punda klúbb Nessvæðisins. Nokkuð sem flesta stangveiðimenn dreymir um en fáir hafa upplifað.Góður gæd er lykilatriði Aron tók laxinn á sunray-túpu hálftommu og í Höfðahyl. Hann mældist 100 sentímetrar. Leiðsögumaður Arons er einn þekktasti í því faginu sem um getur, helsti lærimeistari Bubba Morthens í laxveiðum, sjálfur Krauni eða Björgvin Krauni Viðarsson.Það tók fyrirliða íslenska handboltalandsliðsins ekki langan tíma að komast í 20 punda klúbbinn, nokkuð sem flesta stangveiðimenn dreymir um.Bubbi segir, í samtali við Vísi, þetta tíðindum sæta og það öllu máli skipta, hver er með manni. Og Krauni sé svakalegur gæd eða leiðsögumaður. Sjálfur er hann sérfræðingur um Laxá í Aðaldal, hann hefur skrifað bók um Nessvæði og segir þetta flottustu laxveiðiá landsins. „Punktur.“Þegar bassaleikarinn í DAD setti í stórlax Þó það sé vissulega fáheyrt að maríulaxinn sé 20 pundari kann Bubbi að nefna dæmi í þá veruna. „Já, bassaleikarinn í Disneyland After Dark. Hann hafði aldrei snert á stöng. Aldrei. Og Völli fer með hann út á bát. Og hlustaðu nú vel og vandlega, maríulaxinn hans er 27 pund og 110 sentímetrar. Honum varð nú ekki meira um en svo að hann vildi ekki einu sinni fá mynd af sér með fiskinum. Hefði ekki skipt neinu þó hann hefði verið 4 pund. Það er til svona heppni,“ segir Bubbi og bætir við að sá lax hafi verið tekinn í Presthyl.Aron veitir viðurkenningunni móttöku í morgun við veiðihúsið.Vísir náði tal af leiðsögumanninum Krauna og bað hann um að fara yfir þetta með sér. Aron veiddi laxinn nú í morgun. Krauni segir þetta hafa verið á síðustu mínútum vaktarinnar. Eins og oft vill verða. „Þá gerast ævintýrin. Í sjálfu sér stóð þetta lengi, viðureignin var í korter. Það var tekið fast á honum. Laxinn var mjög vel tekinn. Rosalega flott taka, yfirborðstaka. Þetta var fyrir allan peninginn. Geggjað.“Voru að fara að ganga frá þegar laxinn tók Ekki er úr vegi að ætla að hinn nýbakaði veiðimaður og handboltakappi verði illa gripinn veiðidellu í kjölfar slíkra ævintýra. „Það er auðvitað þannig að menn fá netta veiki þegar þeir lenda í svona nokkru,“ segir Krauni. „Ekkert allir sem fá að upplifa þetta. Áin tekur ekki svona vel á móti öllum.“Bubbi Morthens kann að segja frá því en hann er sérfróður um Nessvæðið og segir Laxá í Aðaldal bestu laxveiðiá landsins, punktur.Fbl/Sigtryggur AriAron hafði verið við veiðar í þrjá daga og ekki búinn að sjá mikið. Ekki högg en þeir Krauni höfðu reist nokkra, eins og það er kallað þegar laxar sýna flugum áhuga. „Við vorum búnir að reisa mjög stóran fisk þennan morgun á sama stað, ofar undir hylnum og ætluðum svo að reyna við hann aftur í restina. En, það voru ekki mörg köst eftir, hann lá neðarlega í hylnum þegar hann tók.“ Þetta var eiginlega opnunarhollið og það komu tíu laxar á land. Einn 208 sentímetrar og svo þessi 100 sentímetrar. „Nokkrir í kringum 90 sentímetrana. Og svo einn smálax. Sem er mjög jákvætt. Skrítið að segja frá því en við vorum sérstaklega ánægðir með að fá smálax. Það hefur vantað síðustu tvö árin, alvöru kröftugar smálaxagöngur. Við vorum ánægðir með það.“Dásamlegt þegar menn fá að upplifa annað eins og þetta Krauni segist ekki vita hversu margir eru í 20 punda klúbbinn, hvar Aron er nú stoltur meðlimur.Krauni, einn þekktasti leiðsögumaður landsins, með 25 punda lax. Hann segir dásamlegt þegar menn fá að upplifa það að setja í svo stóran fisk og Aron gerði í morgun.„Ég get ekki alveg svarað því. Það var ár, 2016, sem var svolítið absúrd ef það má sletta. Þá veiddust 100 tuttugu pundarar. Það skekkti myndina.Margir sem ég þekki sem hafa komið í tíu til fimmtán ár og eru ekki komnir í þennan klúbb. Ég sjálfur var búinn að veiða þarna í tíu ár áður en ég fór í hann. Þetta er ekki sjálfgefið. Dásamlegt að menn fái að upplifa það.“ Laxveiðin í sumar hefur farið varlega af stað en víða hafa menn verulegar áhyggjur af vatnsbúskapnum vegna langvarandi þurrka. Þannig má sjá að veiðitölur eru heldur lágar. Urriðafoss trónir þar á toppi lista með 319 skráða laxa, þá kemur Blanda með 110 laxa. Brennan í Hvítá er svo í þriðja sæti með 93 laxa. Hærri tölur hafa sést en Laxá í Aðaldal er einungis með 20 skráða laxa samkvæmt því sem fært er til bókar hjá Landsambandi veiðifélaga.
Handbolti Norðurþing Stangveiði Mest lesið Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Innlent „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Innlent Clinton lagður inn á sjúkrahús Erlent Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Innlent Lýsti yfir sakleysi sínu Erlent Egill Þór er látinn Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Komust með flugvélinni á ögurstundu Innlent Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Erlent Vandræðamál sem ríkisstjórnin fær í arf Innlent Fleiri fréttir „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Vísnabók gefin til nýrra Hvergerðinga frá Hveragerðisbæ Vandræðamál sem ríkisstjórnin fær í arf Komust með flugvélinni á ögurstundu Stærstu mál stjórnarinnar bíða til 2026 Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Allt kapp lagt á að landsmenn komist heim fyrir jól Segir ríkisstjórnarsáttmálana keimlíka Eitt Egilsstaðaflug en annars öllu aflýst Hvalveiðilögin barn síns tíma Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Sigurður Ingi segir áberandi glufur í sáttmálanum Endurskoða lög um hvalveiðar á kjörtímabilinu Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman „Skítaveður á aðfangadagskvöld og jóladag“ Óveður um jólin og Inga tók lagið á fyrsta fundi ríkisstjórnar Brást of harkalega við dyraati Inga tók jólalag á fyrsta fundi Berglind nýr dómandi við Endurupptökudóm Flugferðum aflýst Vegur að Patreksfirði lokaður vegna snjóflóðs Egill Þór er látinn Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Flæddi inn í hús á Arnarnesi Ný ríkisstjórn fundar í dag „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Missti stjórn á bílnum og endaði inni í garði Lyklaskipti í máli og myndum: „Þetta er voldugur lykill“ Sjá meira